Andvari

Árgangur

Andvari - 01.07.1960, Síða 45

Andvari - 01.07.1960, Síða 45
FARAUTÁLMI andvari 139 Og maðurinn hafði lofað, að hann skylcli standa á götunni, þegar mig bæri að húsinu, þar sem hann gisti. — Það er leiðinlegt að vita þig á ferð yfir heiðina á þessum degi, sagði hotelstjórinn, þegar ég kvaddi hann. — En það er hót í máli að þú hefur sam- ferðamann. Einhvers staðar hér hlaut maðurinn að bíða. Eg dró úr ferðinni og skyggndist út um rúðuna. Og þarna kom hann út úr garðshliði við lítið timburhús. Hann var með tösku í hendinni og gekk út á götuna, svo að ljós- súlan frá bílnum féll á liann. Ég nam staðar. Hann kastaði á mig kveðju, sagði til nafns síns og spurði um farið. Svo kom hann töskunni sinni fyrir og settist í framsætið hjá mér. — Þú hefur orðið seint fyrir eins og ég, sagði ég. — Ojæja, sagði hann. — Ætlarðu ekki suður í dag? — Það kvað vera vond veðurspá, sagði ég. — Nú er það já. Þá er að taka því. Það er sagt að enginn ráði sínum næturstað. Við ókum þegjandi út á þjóðveginn, og ég gat aukið hraðann á betri vegi. I^að var snjólaust, aðeins á einstaka stað leifar af gömlum sköflum, sem sýndust mciri við glampann af hílljósunum en raun varð á. Enn var myrkt, cn ljóssúlan frá bílnurn lýsti upp veginn. Beggja rnegin Var myrkur veggur, aðþrengjandi og dulur. Við ókum inn með firðinum 02 á alllöngu svæði var veRurinn beinn og 1 OO 00 ureiður. Svo tók við gamall vegur, hugðóttur og niðurgrafinn, með svellglott- um og einstaka skafli í lægðum og beygjum. Það glytti í sjóinn neðan við hakkana. Hann vakti þarna í myrkrinu, þögull og dularfullur, og minnti á dýr, sem liggur fram á lappir sínar. Samfylgdarmaður rninn sat þögull í framsætinu og starði fram undan sér ^ð lokað andlit. Hvað sagðist hann heita? Gunnar? Nei, Gunnsteinn. Gunn- stemn Hallsson. Ég kannaðist við þetta nafn — hafði heyrt það. Kannski var e>nhver annar, sem hét sarna nafni, einhver sem ég hafði fyrir löngu haft l<ynni af. Hann virtist innhverfur og fjarlægur þarna í sætinu fast hjá mér og yrti cl<ki á mig að fyrra bragði. Við nálguðumst fjarðarbotninn og vegurinn varð enn niðurgrafnari og ngðottari. Skaflarnir urðu stærri, með djúpum förum, og ég varð að setja Kppann í lággír og aka með annað hjólið uppi á hryggnum milli bílfaranna. - Það má búast við að séu einhverjir skaflar frammi í Giljunum, sagði arþeginn, sem virtist vera farinn að hafa áhuga fyrir ferðinni.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.