Andvari

Årgang

Andvari - 01.07.1960, Side 64

Andvari - 01.07.1960, Side 64
158 SVÉRRlll KRlSTjÁNSSON aNdváui sem við eigum að ná jaln réttur til lög- gjai’ar fyrir okkur, sem allsherjarþingið licr fær l’yrir Danmörku.“ I þessu bréfi gerði Brynjólfur Pétursson drög að þeirri meginstefnu, er markaði íslenzka afstöðu meirihluta Þjóðfundar- manna 1851: fullt sjálfsforræði í konungs- sambandi við Danmörku og samninga um önnur mál, er sameiginleg kynnu að verða. I byrjun árs 1850 gerði Brynjólfur drög að frumvarpi til stjórnlaga fyrir ís- land. Dönsku stjórninni var mjög um það hugað, að hann yrði konungsfulltrúi á Þjóðfundinum, en hann setti stjórninni kosti í þeim efnum. Hann segir sjálfur frá þessu í bréfi til Péturs bróður síns: „Hann (þ. e. Rosen0rn innanríkisráð- herra) hefur nefnt við mig nýlega, hvort eg vildi ekki fara heim sem Commissarius; en eg svaraði honum, að ef ekki hefði verið um önnur mál að gera í þetta skipti, en þau er lítið væri undir komið, mundi eg ekki hafa tregðazt við að gjöra það, þó eg hefði ekki verið stjórninni samdóma í þeim málum og enginn hefði annar feng- izt. En nú, þar sem um íslands velferð er að gjöra um aldur og ævi, gæti eg sam- vizku minnar vegna ekki tekizt Com- missarii embættið á hendur nema stjórnin vildi fallast á uppástungur mínar." Brynjólfur hafði nú þegar náð slíkum embættisframa sem íslenzkur maður gat frekast fengið í þjónustu Danastjórnar um miðja 19. öld. En um leið hafði hin póli- tíska þróun skipað honum á krossgötur: Hann varð að velja um hvort hann vildi halda áfram að gegna sinni háu stöðu og verða formælandi algerrar innlimunar í danska ríkið eða fara úr þjónustu ríkis- ins. Hver sem kynnir sér ævi Brynjólts Péturssonar, er ekki í neinum vafa urn, að hann hefði aldrei lagt fram fyrir Þjóð- fundinn það frumvarp til stjórnlaga, er Trampe greifi bar fram sumarið 1851- Það varð þó ekki af því að hann þyrfti að ganga undir þessa pólitísku eldraun. Haustið 1850 var hann orðinn ófær til vinnu, Rosen0rn innanríkisráðherra skrif' aði Pétri bróður hans vorið 1851, að bróðir Brynjólfur væri orðinn svipur einn hjá sjón. Idann andaðist 18. október 1851. Fyrir andlátið gaf hann öllurn mönnunr, er hann átti fé hjá, upp skuldir sínar. Sjálfur hafði hann lengst af haft miklar skuldaáhyggjur og sagði einu sinni í brefi til Jóns bróður síns, að hann gæti ekki hugsað sér að deyja fyrr en hann hefði goldið hverjum sitt. Með sínu venjulega brynjólfska örlæti gaf hann kunningjum sínurn og stúdentum í Kaupmannahöfn upp skuldirnar.

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.