Andvari

Årgang

Andvari - 01.07.1960, Side 74

Andvari - 01.07.1960, Side 74
168 GUÐMUNDUH líÖÐVARSSON ANDVAM degi á mánudaginn yfir ána á Bjarna- staðaferju og ætlaði út að Sigmundarstöð- um og Refsstöðum. En þegar hún kom þarna hafði hún dottið á svelli og lær- hrotnað og var hún því húin að liggja þarna, svona á sig komin, næstum fimm dægur. Ég hljóp strax heim og sótti jepp- ann og mannhjálp að flytja hana heim. Nokkru seinna kom Valtýr læknir og gcrði að lærbrotinu. Þcgar ég kom fyrst til Kristínar var hún fullkomlega með réttu ráði og alltaf eftir það. Að vísu var henni mjög kalt, því kalsaveður hafði verið og stundum hlind- bylur, en aldrei meira en þriggja til fimm stiga frost. Elún gat gert að gamni sínu og virtist undra hress. 10. febr. (fimmtud.). Kristínu virðist líða sæmilcga vel, hún er næstum alveg lútalaus og hin hrcssasta. — Síðan scgir í bréfi því frá Magnúsi cr ég gat um áður: Þegar þú hringdir hingað til að segia frá því að þú hefðir heyrt hóað hvað cftir annað þegar þú varst á leiðinni milli Bjarnastaða og Kirkjubóls og ég lagði af stað hér út fyrir, þá fóru þau líka Elelgi og Steinka, þó ég geti ekki um það í dag- hók minni. (Elelgi og Steinunn eru svst- kin Magnúsar). Við röðuðum okkur hér út frá túninu, þannig að ég var neðstur, síðan Stcinka, en Helgi efstur, þó var ckki lengra á milli okkar en svo, að við sáum alltaf hvert til annars. Þcgar ég sí Kristínu fyrst, sit hún flötum beinum á nokkurnveginn sléttum grasbala, algjör- lega á bersvæði og sneri í áttina að Kirkju- bóli, en ég kom fram á kastbrúnim fvrir ofan í hann, svo hún sá mig ekki. Ég fór bví í sveig fram hjá henni og kom bcint framan að henni, til þess að henni vrði ckki bilt við. Hún þekkti mig þegar og bað fvrsta sem h.ún sngði var: Æ, crt það þú Maggi minn, skelfing verð ég fegin r.ð sjá þig, hér cr ég búin nð liggja síðnn á mánudag og get bara ekki hreyft mig, mig kennir svo til í löppinni. Ég er hvað eftir annað búin að reyna að standa upp en mér er ómögulegt að stíga í fótinn. — Hún var fullkomlega róleg, en málfærið var dálítið óskýrt vegna þcss hve gegn- köld hún var. Þegar ég hafði stanzað hjá hcnni litla stund, sagðist ég ætla að hraða mér heim og sækja jeppann til að flvtja hana hcim, cn eitthvað hafði hún orð á því að það væri svo mikil fyrirhöfn. Ég sagði hcnni að Steinka væri þarna skammt frá og að ég ætlaði að biðja liana að vera hjá henni meðan ég hlvpi heim. — Kristín var alltaf að tala við Steinku meðan þær biðu þnrna og spurði hana meðal annars almennra tíðinda, því hún hafði engan hitt hátt a þriðja dag og var því mál til komið að fá síðustu fréttirnar. Og lýkur þar með því, scm hér er til- fært orðrétt úr hréfi Magnúsar. Nú stóð svo á, eins og fyrr var getið, að venjulegum bifreiðum var ekki fær vegurinn fram í þessar sveitir, Hálsasveit og Hvítársíðu, sem liggja næst hálendi og jöklum allra sveita í Borgarfirði. Þar sem nú þurfti að sækja lækm handa Kristínu og hafa hraðan á, var hér nýtt vandamál að leysa. Tón Berg- þórsson frá Fljótstungu átti á þessum tíma þungan og sterkan vörubíl með drifi á öllum hiólum. Brauzt hann a þessum bíl eftir lækninum og hafði þo stórum versnað færið á þeim tíma sem Kristín lá úti. Var farin leiðin urn Hvítár- síðu og læknirinn fluttur yfir Hvítá a Bjarnastaðaferju. Læknirinn var Valtyr Valtýsson, sem þá gegndi Kleppjárns- reykiahéraði, hinn hezti drengur. Hann cr nú látir.n fyrir nokkrum árum. Eins og getur í dagbók Magnúsar, gcrði Valtýr að lærhroti Kristínar, en öll sú hjúkrun og umönnun sem góðar vina- hendur geta í té látið var lienni vcitt i

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.