Andvari

Volume

Andvari - 01.07.1960, Page 89

Andvari - 01.07.1960, Page 89
ANDVAIiI skáldskapur OG VERULEIKI 183 liarðstj órnina enda í taumlausu sjálfræði, réttnefndum óskapnaði. Fullir undrunar höfum vér séð ábyrga stjórnmálamenn víkja sér undan ábyrgð sinni, og með sörnu undrun höfum vér séð mikla vís- indamenn, fræga hugsuði og hrifna hug- sjónamenn hlaupa í gönur með hugsanir °g hugmyndir, sem leiddu til þjáningar °g dauða manna í milljónatali. f dag skilj- um vér fullvel þá æskumenn, sem snúa sér í fyrirlitningu frá öllum glamuryrðum °g slagorðum. En ef vér viljurn finna veruleikann í öllum þessum óraunvcru- leika, leita sannleikans bak við alla þessa ringulreið og fjarstæðukenndu staðreynd- lr, þá verðum vér enn sem áSur að flýja á náðir skáldanna, sem halda ótrauð áfram tilraunum sínum til þess að draga upp rétta mynd manns og tíma og láta ekkert annað stjórna sér en viljann til að vera sönn í list sinni. Oft verðum vér fyrir vonbrigðum, þegar vér snúum oss til skáldanna til þess að leita huggunar, en finnum í hennar stað helberan ótta og örvæntingu. En nauðugir viljugir verðum vér þar að horfast í augu viS oss sjálfa, vér sjáum vort eigiS svipmót, vorar eigin f ngsanir og athafnir, oss sjálfa, manninn 'neð sínum kostum og löstum. Og aldrei fiirum vér algera erindisleysu, því að hin dýpsta örvænting getur falið í sér vonar- neista. Og ef vér látum afvegaleiðast af f arðstjórnarhrópum nútímans úr austri cSa vestri, ef vér freistumst til að efast um þýSingu skáldskaparins í sambandi við hinar stórhrikalegu staðreyndir stjórn- málanna, þá þurfum vér ekki annað en renna augunum aftur í tímann. Hvers virði væri hin vestræna menning nú í ^ag, ef hún hefði ekki átt sín skáld? Hvað mundi hún vcra án Hómcrs og grísku harmleikjanna, án fornsagnanna, án Oantes og Shakespeares? Hvað mundum Ver vita um hiS raunvendega ástand í Rússlandi, cf ekki hcfðu uppi verið skáld scm Tolstoj og Dostojevski? Er ckki fólg- in von um betri skilning og samkomulag milli hinna tveggja aðgreindu heima í þeirri staðreynd, að hinn mikli skáldskap- ur fortíÖarinnar verkar nú á dögum sem lifandi andlegur kraftur í öllu hinu mikla rússneska samfélagi? Og ef vér lítum í vom cigin barm, cf oss liggur við að ör- vænta við tilhugsunina um þá efnis- hyggju, þá andlegu útþynningu og póli- tísku sambræðslu, sem Ameríka hefur fært oss til handa, þá megum vér ekki gleyma því, að einnig þar er að finna hinn stórfenglegasta, kjarkmesta og raun- sæjasta nútíðarskáldskap. Scm rithöfundur getur maður því ekki annað gert en Iialdið áfram tilraun sinni að skilja hið óskiljanlega og gera það mögulegt, sem ómögulegt er. Þctta verÖur að gera, þótt það sé dæmt til að mistakast, þótt ekki sé annað til umráða en ónóg hjálpargögn, dómgreind af skornum skammti og gloppótt þekking. Þetta verð- ur að gera þrátt fyrir uinkomuleysi lista- mannsins og þá litlu virðingu, sem hann nýtur í nútíma þjóSfélagi, þar sem sam- keppnisandi og dýrkun veraldargengis mótar jafnvel hina ábyrgu gagnrýni, svo að aðra stundina hefur bún listamanninn til skýjanna upp í skjannabirtu falsaðrar leikfrægðar, en kaffærir hann hina stund- ina í spotti og spé, sem hann hefur ekki heldur til unnið. En mitt í öllu þessu argaþrasi má hann aldrei afneita þeim sannleika, sem hann langar oftlega að ýta frá sér, því að hann er uggvænlegur og ábyrgðin þung, sem honum fylgir — þeim sannleika, sem hann verður nauð- ugur viljugur að játast undir og veita viðtöku, ckki af hégómlegri mikilmennsku heldur í djúpri auðmýkt: þeim sannleíka, að penninn er máttugri en sverðið. Freysteinn Gnnnarsson þýddi,

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.