Andvari

Årgang

Andvari - 01.05.1961, Side 61

Andvari - 01.05.1961, Side 61
andvahi ÞÝZK ÁIIRIF Á ÍSLHNZKAR BÓKMENNTIR 59 Rainer Maria Rilke. Stefan Zweig. um. Metti maður bókinni, má sjá, að þar eru komin flest frægustu ljóð Goethes, en því miður saknar maður handbragðs Jónasar Hallgrímssonar víðast hvar. Svipað er að segja unr bækur þeirra Schillers og Heines, þar eru þýðingarnar mjög misjafnar. En eftir þessi skáld eru þó sum af þeim ljóðum, sem hvert manns- barn á íslandi hefur kunnað til skamms óma, eins og væru þau innlend. Má nefna t. d. eftir Goethe: Sveinninn rjóða rosu sá (í þýð. Steingríms) og eftir Heine: Stóð ég út í tunglsljósi, stóð ég út við skóg (Jónas), Mér um hug og hjarta nú (Steingrímur) og Loreley (einnig þýtt af Steingrími). * Þegar raunsæisstefnan hélt innreið sina í landið, sló í brýnu með frumherj- Um fiennar og Benedikt Gröndal, sem þá Var einna hreinræktaðastur í andstöðu sinni gegn Brandesi. Árið 1888 hélt hann fyrirlestur hér í bæ til að andmæla öðr- Um fyrirlestri, sem Hannes Hafstein hafði (laldið þá skömmu áður. Fyrirlestur þessi er í eðli sínu persónuleg málsvörn, og ekki mjög fræðilegur. Þó langar mig að taka hér upp það, sem Gröndal segir um rómantikina eins og hún var í innsta eðli sínu í upphafi, þ. e. sem heimspeki- leg afstaða einstaklingsins: Gröndal segir: „Skoðanir hans (þ. e. Schellings) má framsetja hér um bil með þcssum orðum: Einungis skáldið hefur lvkilinn til hins mystíska undraheims, til náttúrunnar með öllum hennar leyndardómum, einungis skáldið skilur sameiningu hins gervalla í guði. I skáldskapnum fær skáldið meðal til að láta allt þetta í Ijós, og þannig fær allur þessi skáldskapur á sig meir eða minna mystískan blæ. Þó að enginn skilji, þá gerir það ekkert til; þvert á móti sannar það, að þctta sé verulegur skáld- skapur, því að skáldskapurinn skilst ekki með skynseminni, heldur með hinu æðra skilningarviti andans. Þetta er í stuttu máli gangurinn í skáld- skap hins rómantíska flokks, sem upp kom í Þýzkalandi eftir aldamótin," segir Gröndal að lokum.

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.