Andvari

Volume

Andvari - 01.05.1961, Page 67

Andvari - 01.05.1961, Page 67
ANDVAHI RÍMUR OG RAUNVÍSINDI 65 þess mun ég flokka námsgreinarnar niður samkvæmt eðli þeirra og gera grein fyrir hlutföllunum á milli þeirra í stundar- skrám helztu skólanna, eins og þær voru árið 1959. Mér hefur þótt hentugt að flokka námsgreinarnar í 6 flokka: í. 1. og 2. flokknum eru þær námsgreinar, sem alltaf hljóta að koma fyrstar, en það eru tungumálin, undirstaða allrar hugsunar og fræðiiðkana. Tel ég móður- málið í 1. flokki en öll erlend mál til samans í 2. flokki. í 3. flokki er saga og landafræði, en þessar greinar til sam- ans byggja upp, bæði í tíma og rúmi, það svið, sem hver maður, eða öllu heldur rnannkynið í heild, á að dvelja og starfa á. í 4. flokki tel ég stærðfræðina, sem er ein aðalundirstaða raunvísindanna, en í 5. flokki koma svo raunvísindin sjálf eða náttúrufræðin. Til náttúrufræða tel ég: eðlisfræði, efnafræði, jarðfræði, jurta- fræði, dýrafræði og líffræði alls konar. Til 6. flokksins teljast svo allar aðrar námsgreinar, svo sem kristinfræði, skrift, handavinna, söngur og leikfimi. Er þá næst að athuga, hversu mikill hluti náms- tímans á hinum ýmsu fræðslustigum er aetlaður hverjum hinna 6 flokka. Við byrjum á barnaskólunum. f þeim eru sex bekkir, 7 ára til 12 ára börn. Lið- lega 14 hluti námstímans í barnaskólun- um eða 27% fer í móðurmálskennslu, 15% fer í sögu, landafræði og náttúru- fræði til samans og liðlega annað eins, eða 17% í reikning. í 6. flokkinn, þ. e. aðrar námsgreinar, fara um 34 af náms- tímanum eða 40%. Erlend mál eru engin kennd í íslenzkum barnaskólum. Að afloknum barnaskóla, eða á 13. aldursári taka við gagnfræðaskólar, sem eru dálítið mismunandi. Tveir fyrstu bekkirnir eru þó alls staðar nær eins og er þar um skyldunám að ræða. En þegar þessum tveim bekkjum lýkur, er um tvær leiðir að velja. Annars vegar er sú leið, sem endar með gagnfræðaprófi eftir 2 ár, þ. e. hið almenna gagnfræðanám. En hins vegar er sú leið, sem liggur upp í mennta- skólana, og eru það einnig 2 bekkir (landsprófsbekkur og 3. bekkur í mennta- skóla). Við víkjum fyrst að hinu almenna gagn- fræðanámi. Gagnfræðaskóli er þýðing á realskóli, en real þýðir raunverulegur. Hefur verið gert ráð fyrir, að þarna skyldu unglingarnir fyrst og fremst kynnast því raunverulega þ. e. raunvísindunum. Við skulum sjá, hvernig gagnfræðaskólarnir rækja það hlutverk. Af námstímanum fara þar 16% í móðurmál, 21% í önnur mál, 12% í sögu og landafræði, 14% í stærðfræði, en aðeins 7% í náttúrufrædi. I alls konar aðrar greinar, 6. flokkinn, fara 30% námstímans. Gagnfræðanám þeirra, sem ganga upp í menntaskóla, er að því leyti frábrugðið hinu almenna gagnfræðanámi, að rninni tíma er eytt í 6. flokk (aðrar greinar) eða 22% í stað 30%. Aftur á móti er meira í erlendum málum, 26% í stað 21% og 10% í náttúrufræði í stað 7%. Aðrir skólar, er taka við nemendunum eftir 2—3 bekki gagnfræðastigsins eru þessir: sjómannaskóli, vélskóli, húsmæðra- skólar, bænda- og garðyrkjuskólar, iðn- skólar, verzlunarskólar, o. s. frv. Allir þessir skólar leggja aðaláherzluna á þá sérfræðigrein eða atvinnugrein, sem þeir eru við kenndir. Munu þeir ekki komast hjá því að fara eitthvað út í þær greinar náttúrufræði, sem sérgrein þeirra byggist á, en sú fræðsla virðist þó mjög af skorn- um skammti. Þá er komið að lærdómsdeildum menntaskólanna, en þar er um þriggja ára nám að ræða. í stærðfræðideildum fara af námstímanum í móðurmál 11%, erlend mál 26%, sögu og landafræði 8%, stærðfræði 17%, náttúrufræði 27% og í annað 11%. Hér er sem vera ber náttúru- 5

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.