Andvari

Volume

Andvari - 01.05.1961, Page 79

Andvari - 01.05.1961, Page 79
ANDVAIU VAXTARÁÆTLUN VHGNA MANNHJÖLDA 77 óbreyttum hraða ætti kynstofninn að verða 860—900 þús. unr 2040 og 1840 þúsund til 2 milljónir um 2080. Þessi vitneskja þarf að færa íslendingum kjark, en engan bilbug, þótt nokkurt torleiði sé að marki. Helzta efasemd um réttmæti þessara talna er byggð á því, að á kreppuárum eftir 1930 fækkaði mjög fæðingum og kunnátta til að hindra þær mun nú vera jafngóð hér og með fremstu tækniþjóð- um. Það, að fæðingar eru nú tíðar, sýnir að vísu hér, líkt og reynt þykir í Austur- Evrópu, að kunnáttan leiðir því aðeins til þjóðarstöðvunar, að efnalegar og and- legar orsakir valdi kreppu. í þessari grein hef ég ekkert leyfi til að spá henni. Framfarir í læknisfræði og heilsugæzlu kvenna og barna og dálítil lækkun gift- ingaraldurs munu einnig stuðla að auk- inni fjölgun. Mönnum er frjálst að gizka á tölur, en ef ekki skal gizka, heldur reyna að reikna, er það áreiðanlega talan 400 þúsund, sem næst sanni fer. Frávik upp fyrir það gætu vart numið miklu, nema skyndiinnflutningur gerðist. Frá- vik niður á við geta því aðeins numið miklu, að okkar bíði einhvers konar ófarir, og þau út af fyrir sig gætu leitt af sér ófarir. Segjum, að við hugsuðum lítið eitt of smátt og undirbyggjum aðeins rúm fyrir 350 þúsund á Islandi um 2000. Með því gæti það áunnizt, að afgangur fólks hvern áratug yrði fluttur út eða tafið fyrir því, að hann fæddist, en erlendur þrýstingur 1995—2000 mundi þó knýja íslendinga til að leyfa innflutning svo mikinn, að íbúar yrðu engu að síður 400 þús. þá. Bezt er að auka innlenda stofninn, þótt við höfum ekki mjög á móti innflutningi þeirra þjóðbrota, sem eru nógu smá, svo að þau íslenzkist fljótt. Og undan for- sjánni fyrir 400.000 manna þjóðarbúi geta íslendingar alls eigi flúið. Það ætti að vera áhættuminnsti kost- urinn að miða þegar við 400 þúsundin. Lítil umframeyðsla vaxta og erfiðis lægi arðlaus fyrir því, þótt talan fylltist 5 árunum síðar en ætlað er. Gæti eins fyllzt 2—4 árum fvrir 2000. Einnig kann að þykja ráðlegt að flytja inn á hverjum áratug (samkvæmt kvóta um menn hvers þjóðernis) það, sem þá kynni á það að skorta, að fjölgunin stefni hlykkjalaust í 400 þúsunda markið. í vinnuaflsskorti liðins áratugs hefði þurft hér innflutning sjóvanra manna. Þegar vinnuafl kann að skorta framvegis á tímabilum, mun það meir eða eigi síður verða til vinnu í landi, og er þá um fólk frá mörgum löndum að velja. Innflutn- ingur á starfsliði til framleiðslunnar hefur þess kyns efnaleg áhrif, að hann getur ekki orðið til þess við núverandi aðstæð- ur, að íslendingar hafi minni atvinnu sem þjóðarheild, heldur ávallt meiri á eftir. íslenzkt fólk, sem úr landi fer, gerir það sjaldan í þeim tilgangi að taka erlendis þá tegund starfs, sem útlendir ynnu hér, það er ekki vanalegt verkafólk. Landflótti héðan tæki til tveggja annarra tegunda, ef hann yrði verulegur. Lítum snöggvast á hann. Fyxstu kynslóðir stúlkna með góða enskumenntun flytjast mjög burt með biðlum herliðs og ferðamannastraums í hverju smáríki eða á vegum framhalds- náms erlendis, fegurðarsýninga og við- skiptatækni. Sjaldan verður útlendingur íslenzkur við það að kvænast íslenzkri brúði. En jafnskjótt og hlutverk íslenzkra kvenna í heimalandi eykst að fjölbreytni, mun talsvert draga úr búsetu þeirra er- lendis. Hraðinn á byggingu íbúða í land- inu mun og ráða talsverðu, m. a. urn lækkun giftingaraldurs, en hár giftingar- aldur er t. d. á írlandi rík orsök til land- flótta. Að frátöldum Ameríkuflutningum, sem

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.