Andvari

Årgang

Andvari - 01.05.1961, Side 94

Andvari - 01.05.1961, Side 94
92 ANDMÆLI VIÐ RITDÓMI ANDVARI gerðar meiri kröfur til fæðis og aðhlynn- ingar en víða annars staðar á landinu. Það var líka AustfirSingur, sem fremstur stóð í matarmálinu á Möðruvöllum. En Hjaltalín lærði fljótt af reynslunni, eins og allir góðir og skynsamir menn gera. Svo mikið er víst, að eftir þetta hljóp aldrei nein snurða á skólastjórnarþráð Hjaltalíns. Ummæli B. B. um að skóli hans hafi nokkr- mn sinnum rarnbað á glötunarbarmi eru því algerir staðleysustafir, eins og raunar hitt um kalda hjartað, óvinsældir og lélega skóla- stjórn. Ég veit, að ég tala fyrir munn allra nú- lifandi Möðruvallamanna, þegar ég segi, að við virtum og dáðum allir Hjaltalín sem skólastjóra og kennara og okkur þótti mjög vænt um hann og skólann. Þakklætisvott okkar höfum við líka sýnt með því að mynda Hjaltalínssjóð við Akur- eyrarskóla, sem verðlauna skal þá nemend- ur er fram úr skara í íslenzku og ensku, en það voru þessar námsgreinar, sem Hjaltalín kenndi. Þegar skólinn varð 75 ára, beittu Möðruvallamenn á Akureyri sér fyrir því að auka sjóðinn verulega, svo hann gæti tekið til starfa. Undir þetta tóku allir Möðruvellingar, sem þá lifðu, og nú jókst sjóðurinn svo, að hann veitir hin ákveðnu verðlaun, sem ætlað var. Ég vil að lokum nefna eitt dæmi enn um hlýju til Möðruvallaskóla. Bogi Ólafsson frá Sumarliðabæ var sam- bekkingur minn á Möðruvöllum. Hann nam síðar ensku við Hafnarháskóla og varð kennari í þeirri tungu við Menntaskólann í Reykjavík og er nú fyrir löngu lands- kunnur maður. Ég kom oftast til hans, þegar ég var á ferð í höfuðstaðnum. Tók hann þá ævinlega frarn skólaskýrsluna frá Möðru- völlum, og við bárum saman bækur okkar um félagana, hverjir væru enn ofan jarðar og hvað úr þeim hefði orðið. Svo var rætt um skólastjórann og skólalífið. Alltaf end- aði þetta spjall með því að Bogi sagði: „Alltaf þykir mér Möðruvallaskólinn skemmtilegasti skólinn, sem ég hef verið í.“ í desember 1960. Gísli Helgason í Skógargerði.

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.