Andvari

Årgang

Andvari - 01.05.1961, Side 96

Andvari - 01.05.1961, Side 96
RITSJÁ Einar H. Kvaran: Mannlýsingar. Tómas GuS- mundsson só um útgáfuna 205-|-XXXVIII blaðsíður. Almenna bókafélagið 1959. Þessi bók var gefin út á aldarafmæli Ein- ars H. Kvarans í desembermánuði 1959. Hún er, svo sem nafn hennar bendir til, að meginstofni greinar um menn — flestar samdar vegna afmæla eða andláts. Síðan kemur langt „alþýðuerindi" af skyldum toga: Skapstórar konur — urn Hallgerði langbrók, Bergþóru Skarphéðinsdóttur og Guðrúnu Ósvífursdóttur; þá ritgerðin Fyrir fjörutíu árum í lærða skólanum, og að lok- um ávarp sem höfundur flutti í útvarp á 75 ára afmæli sínu: Afstaða mín til bók- menntanna. Efni bókarinnar er þannig ekki allskostar samstætt; og þótt miðað væri ein- göngu við mannaminnin, þá er heiti hennar ekki heldur fyllilega réttmætt — það lofar meiru en innihaldið efnir. Sigurður Nordal gaf eitt sinn út safn frumsaminna ritgerða af líku tagi og mannamyndir Kvarans. Hann kallaði það Svipi, og fór nær réttu lagi. En þetta er lítilvægt atriði. Hitt varðar öllu, að bókin flytur verðmætt efni. í henni birtast drög að lýsingum merkilegra manna, sem alltaf er fengur að kynnast; hún er kastljós yfir persónur og málefni á löngu liðnum tíma, og hún er fjölfróð um höf- und sinn sjálfan — einhvern mesta menn- ingarpersónuleika, sem uppi hefur verið með íslendingum. Við hljótum lengi að hafa áhuga á því sem samtíðarmenn eða vinir Gests Pálssonar, Þorsteins Erlingssonar, Hannesar Hafsteins og Matthíasar Jochums- sonar kunna frá þeim að segja. En Einar Kvaran var sjálfur svo mikilhæfur maður — svo vitur og sannleikselskur — að um- sögn hans um þessa og þvílíka höfuðsmenn í íslendinga sögu vekur okkur tvígildan áhuga. Ég ætla ekki að gera samanburð á ein- stökum greinum þessa safns. Það hefst á langri ritgerð um Gest Pálsson, þeirri sem birtist með Ritum hans árið 1927. Þetta er veigamesta „mannlýsing" bókarinnar. Einar og Gestur voru bókmenntalegir frumherjar og samherjar og áttu margt fleira saman að sælda. Einar hafði síðar betri aðstöðu en nokkur maður annar til að lýsa skaplyndi og persónuleik Gests, enda nýtur ritgerðin þess. Hún er rituð í senn af þekkingu, innlifun og samúð. En Einar gerir einnig afburðaljósa grein fyrir skáldskap Gests og skáldlegum hugmyndum hans — og hygg ég, að ekki hafi í annan tíma birzt ágætari ritsmíð um höfund Kærleiksheimilisins og Tilhugalífs. Það er sömuleiðis ástæða til að vekja athygli á greininni um Hannes Hafstein á stúdentsárunum; þar birtist efni sem farið hefði forgörðum, ef Einar hefði ekki haldið því til haga. Niðurstaða hans í Skapstórum konum þykir mér að öllu merkileg; hinsvegar er erindið of langt og efni tveggja íslendingasagna rakið helzti ýtarlega. Ég trúi ekki öðru en einhvern hafi tekið að lengja í góðan kaffisopa, þegar leið á þann lestur. — En sá, sem einkum kynni að leita höfundarins sjálfs í þessari bók, hann skyldi lesa ritgerðina um lærða skólann. Allar greinarnar eru gagnteknar af höfundi sínum, þrungnar persónu hans, mildi hans, mannúð og góðvild; en í þess- ari ritgerð segir hann bein deili á sjálfum

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.