Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1942, Page 8

Andvari - 01.01.1942, Page 8
4 Jón Sigurðsson ANDVÁai dal og siðast að Holti í Svínadal. Hann var góður bóndi og bætti Holt mjög eftir að hann kom þangað. Faðir Magnúsar í Holti var Magnús Magnússon, bóndi í Garði í Hegranesi, síðast í Ytra-Vallholti; hann drukknaði í Héraðsvötnum 1859. Bróðir Magnúsar í Garði var Brynjólfur bóndi á Gilsbakka í Skagafirði, föðurfaðir hinna nafnkunnu gáfúmanna Magnúsar lögfr. og Skafta Brynjólfssonar þingm. í N.-Dakota. Magnús bóndi í Garði átti Margrétu Sigurðardóttur, af ætt Ásverja og frændkonu Ólafs alþm. í Ási. Þau áttu mörg börn; meðal þeirra var Elísabet, anuna Þórarins á Hjaltabakka, Rannveig, föðurmóðir Péturs hreppstj. á Guðlaugsstöðum, og Stefán, faðir Magnúsar kaupmanns og bónda á Flögu í Vatnsdal. Kona Magnúsar í Holti var Margrét Jónsdóttir frá Víðimýri, systir Sigríðar, konu Jóns Þorkelssonar rektors, og séra Magnúsar í Laufási, föður Jóns Magnússonar forsætisráð- herra. Björg húsfreyja í Holti og Jón Magnússon voru því systkinabörn. Systir Bjargar í Holti var Anna húsfrevja á Gunnsteinsstöðum, móðir Magnúsar Péturssonar bæjarlæknis í Reykjavík og Hafsteins bónda á Gunnsteinsstöðum. Af því, sem hér er ritað, er það ljóst, að Magnús Guðmunds- son var af góðu bergi brotinn, að honum stóðu góðir ættstofnar í allar áttir. Mestu skipti þó, að hann var svo lánsamur að hljóta í vöggu- gjöf beztu kosti sinna ættmanna, og það var heldur enginn ættlerabragur á því, hvernig hann neytti þessara hæfileika, eins og síðar mun verða sýnt. Magnús ólst upp ineð foreldruin sínum, fyrst á Rútsstöðum og síðar í Holti. Faðir hans var mikill búsýslumaður og hélt börnum sínum til vinnu, er þau stálpuðust. Magnús vandist því allri algengri sveitavinnu og lærði snemma að beita kröftum sínum. Hafði hann af því mikla ánægju; hvort heldur hann gekk að hey- skap, skepnuhirðingu eða öðrum sveitastörfum. í fámennum vinahóp minntist Magnús oft hin síðari árin á æskuheimili sitt og störfin i föðurgarði. Okkur, sem á hlýddum, duldist ekki
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.