Andvari - 01.01.1942, Page 11
ANDVARI
Alagnús Guðmundsson
7
Bændur og aðrir, er komu til sýslumanns til að ljúka erind-
um, höfðu orð á því, að svo virtist sem þessi nýi sýslumaður
hefði ekkert að gera. Undruðust þeir stórlega, er úrskurðir og
aðrar afgreiðslur komu þrátt fyrir þetta jafnharðan frá hon-
um aftur.
Sýslunefnd Skagafjarðarsýslu hefur frá upphafi vega sinna
haft forustu í flestum helztu framfara- og velferðarmáluin
sýslunnar. Sýslumenn Skagfirðinga hafa þá einnig oft átt
drjúgan hlut að þeim málum.
Þessi forusta hefur krafið framsýni, samfara glöggskyggni
á að verja fé sýslunnar haganlega, svo að verulegur árangur
næðist, því að fjárráðin hafa ávallt verið takmörkuð. Magnús
Guðmundsson varð fljótlega sjálfkjörinn forustumaður á
þessu sviði, og stjórn hans á málefnum sýslunnar var með
ágætum.
Meðan Magnús var sýslumaður, voru ýmis héraðsmál á
prjónunum. Einkum voru það tvö stórmál, er þá voru undir-
búin og komust í framkvæmd: Bryggjubyggingin á Sauðár-
króki og steinsteypubrúin á Héraðsvötn eystri, er var byggð
sama árið og Magnús flutti suður. Báðum þessum málum átti
Magnús mikinn hlut að að hrinda í framkvæmd og að sýslan
lagði fram til þessara mannvirkja mikið fé á þeirra tíma mæli-
kvarða.
Um aðra héraðsstjórn Magnúsar og dómarastörf er hið sama
að segja, hann reyndist þar í fremstu röð fyrirrennara sinna
og ágætur lagamaður. Þegar þar við hættist alkunn prúð-
mennska hans og drengskapur, þá hlaut svo að fara, að
honum hlotnaðist almennt traust og miklar -sdnsældir í hér-
aðinu.
Gamlir menn jöfnuðu Magnúsi helzt við sína vinsælustu
sýslumenn. Það er og alkunnugt, að allir þeir Skagfirðingar,
er mest unnu með Magnúsi Guðmundssyni að héraðsmálum
og öðru og höfðu af honum mest kynni, bundust honum svo
sterkum böndum trausts og vináttu, að þau entust meðan þeir
lifðu.
Eins og vænta mátti, fólu Skagfirðingar Magnúsi ýmis trún-