Andvari - 01.01.1942, Page 19
ANDVAIU
Magnús Guðmundsson
15
orkað. Skuldir ríkisins læklcuðu á 2 árum um rúmar 5 millj.
króna.
Eftir þetta átak sneri stjórnin sér meira að nauðsynlegum
framkvæmdum, og átti Magnús Guðmundsson ekki minnstan
hlut í því. Var þá varið til verklegra framkvæmda meira fé en
nokkur undangengin ár önnur, síðan Alþingi fékk fjárveit-
ingarvald. Er þó þeim, er þetta ritar, kunnugt um, að Magnús
Guðmundsson hefði kosið, að átökin á þessu sviði hefðu orðið
enn stærri.
Þann 23. ág. 1926 andaðist Jón Magnússon forsætisráðherra.
Varð Magnús Guðmundsson þá einnig dómsmálaráðherra.
Jafnframt átti liann kost á að verða forsætisráðherra, en hann
hafnaði því boði.
Við alþingiskosningarnar 1927 komst íhaldsflokkurinn í
minni liluta, og sagði þá stjórnin af sér.
VI.
Þegar Magnús Guðmundsson lagði niður ráðherrastörf, gerð-
ist hann aftur hæstaréttarmálaflutningsmaður og hafði mikið
að starfa.
Sumarið 1928 sameinaðist íhaldsflokkurinn og leifarnar af
gamla Sjálfstæðisflokknnm i einn flokk undir nafni Sjálf-
stæðisflokksins. Átti Magnús Guðmundsson allmikinn þátt í
þeirri breytingu, er varð til að styrkja flokkinn á fleiri vegu.
Við stjórnarskiptin 1927 tók Framsóknarflokkurinn við
völdum, sem kunnugt er, og myndaði stjórn undir forsæti
Tryggva Þórhallssonar. Fór hún með völd þar til fyrri hluta
ársins 1932.
Mörgum þótti þessi stjórn harðhent á andstæðingum sínum,
léti jafnvel kné fylgja kviði, ef færi gæfist. Stjórnarandstaðan
var þá líka harðvítug og hlífðist ekki við. Var Magnús mjög
i fylkingarbrjósti á þessum árum, enda annar aðalforingi
stjórnarandstæðinga á þingi.
Árið 1932 myndaði Ásgeir Ásgeirsson stjórn með stnðningi
sjálfstæðismanna og nokkurs hluta Framsóknarflokksins. Tók
Magnús Guðmundsson sæti i þeirri stjórn fyrir hönd Sjálf-
2