Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1942, Page 25

Andvari - 01.01.1942, Page 25
ANDVARI Magnús Guðmundsson 21 fast á sinu máli og var þrautseigur bæði í sókn og vörn. Hann var enginn áhlaupamaður, fór sér að engu óðslega, en hann var svo prýðilega vel greindur, að hann fann oft öruggust úr- ræðin til lausnar vandamálum, þótt áhlaupamennirnir yrðu venjulega fyrri til að skila sínum tillögum. Áður hefur verið hent á það traust og vinsældir, er Magnús aflaði sér á fáum árum í Skagafirði. í flokki sínum átti hann hinu sama að fagna. Það var sannmæli, er formaður Sjálf- stæðisflokksins, Ólafur Thors, mælti við útför hans: „Eigi aðeins þótti eigi ráð ráðið í flokki. þínum, nema þú værir til kvaddur, lieldur var hitt langtíðast, að við fylgismenn þínir og flokksbræður leituðum ráða þinna um flest, er okkur hverjum einum lék hugur á að aðhafast á sviði stjórnmálanna, og þóttu þín ráð jafnan vel gefast.“ — Það hefur áður verið vikið að því, hvern hlut Magnús Guð- mundsson átti í samstarfinu innan Sjálfstæðisflokksins. Einn helzti stjórnmálaandstæðingur Magnúsar, Jónas Jónsson al- þingismaður, víkur einnig að þessu í hlýlegri grein, er hann ritaði í Tímann eftir lát Magnúsar. Kafli úr grein hans bregður upp réttri og allskýrri mynd af Magnúsi Guðmundssyni, og fer hann hér á eftir. „Hann ýtti sér aldrei fram til mannvirðinga, var hlýr og tillögugóður um allt samstarf í flokknum og gætinn og var- færinn um framkvæmdir út á við. Þegar nýliðar komu í flokkinn á Alþingi, leituðu þeir jafnan ásjár hjá Magnúsi Guðmundssyni um frumvörp og tillögur, meðan þeir voru að fá æfingu. En þótt Magnús Guðmundsson sækti ekki eftir mannvirðingum, þá voru flokksbræður hans þvi fúsari að veita honum þá þjónustu. Slíkur maður er eftir- sóttur í hverjum þingflokki.“ Magnús Guðmundsson var mjög árvakur fyrir kjördæmi sitt og bar hag þess mjög fyrir brjósti, og flestar meiri háttar framkvæmdir í Skagafirði á árunum 1916—38 eiga honum og stuðningi hans mikið að þakka. Hann beitti þó aldrei frekju eða ágengni til að koma sínum málum fram, því allt slíkt var honum fjarri skapi.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.