Andvari - 01.01.1942, Blaðsíða 26
22
Jón Sigurðsson
ANDVARl
Þótt Magnús Guðmundsson hlífðist lítt við andstæðinga sína
í stjórnmálasennum, þá var hann í eðli sínu hneigðari til
friðar en styrjaldar og kaus helzt að jafna deilumálin á frið-
samlegan hátt. Harðar stjórnmáladeilur voru honum ógeð-
felldar og þreyttu hann. Atvikin höguðu því þó svo, að aðal-
starfsár hans á stjórnmálasviðinu voru hörð baráttuár og að
hann varð vegna ágætra hæfileika sinna og flokksforustu að
berjast í fremstu viglínu til æviloka.
IX.
Magnús Guðmundsson var tæplega meðalmaður á hæð, en
þrekinn, hlýlegur og prúður í framgöngu, jafnlyndur og hófs-
maður í öllum greinum. Hann var mikill vinur vina sinna og
trölltryggur, hollráður og hjálpfús. Þeir voru margir, er leit-
uðu til hans ráða og hjálpar, öllum tók hann ljúfmannlega og
leysti vandræði fjölda manna, en um það vissu fæstir. Frænd-
fólki sínu og konu sinnar var hann hjálparhella, ef eitthvað
bar út af. Hann var fjármálamaður og fésæll, sem hann átti
kyn til.
Magnús var ágætur heimilisfaðir og átti gott heimili. Kona
hans var Sofía Bogadóttir Smith, bónda í Arnarbæli á Fells-
strönd, og konu hans Oddnýjar Þorsteinsdóttur frá Grund í
Svínadal. Voru þau Sofía og Magnús systkinabörn. Sofía er
góð kona og glæsileg. Þau giftust 12. okt. 1907. Hún lifir mann
sinn.
Börn þeirra hjóna eru:
1. Bogi Smith, stýrimaður á mótorskipinu Skeljung, dáinn
25. ágúst 1937, ógiftur og barnlaus.
2. Björg, gift Jónasi Thoroddsen, bæjarfógeta í Neskaupstað
í Norðfirði.
3. Þóra, ógift heima hjá móður sinni.
Magnús Guðmundsson var heilsuhraustur alla ævi, en inni-
vera og miklar kyrrsetur hafa að líkindum veildað hann. Hann
kenndi lasleika á þingfundi föstudaginn 26. nóv. og gekk þá
heim til sin, en var fluttur í sjúkrahús um kvöldið og skor-