Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1942, Page 29

Andvari - 01.01.1942, Page 29
ANDVARI Um manneldisrannsóknir 25 nauðsynlegur grundvöllur undir allar frekari aðgerðir til úr- hóta, enda hefur víða um heim verið lagt mikið kapp á þær á undanförnum árum. Skal nú lýst nokkuð þeim aðferðum, sem helzt koma til greina við slíkar rannsóknir. I. Þá er fyrst sú, að athuga alla þjóðarneyzluna í heild, sam- kvæmt framleiðslu og verzlunarskýrslum, og er bezt að taka nieðaltal nokkurra ára. Innflutningi matvara á ári og fram- leiðslu i landinu umfram útflutning er jafnað niður á íbúa- tölu landsins og þannig fengin „ársneyzla“ á hvern lands- nianna, og út frá henni er svo reiknuð meðaldagsneyzlan. Þessi aðferð er handhæg mjög á pappírnum, ef næg gögn eru fyrir hendi, en í reyndinni hefur hún allverulega annmarka. Af innflutningsskýrslum verður t. d. ekki séð, hve mikill hluti matarins (t. d. kornvöru) fer í skepnufóður, ónýtist við geymslu (ávextir) eða fer til annarra þarfa en beinnar neyzlu lands- nianna, en á þessu getur munað allverulegu, og á þetta einnig við um innlenda matvöru. Erfitt er og að fá ábyggilegar heim- tldir um magn innlendu framleiðslunnar, eða svo mun það a. m. k. hér á landi, því að þar verða framtöl einatt ófullko.mn- ari, ekki sízt á því, sem framleitt er til heimilisins (garðamatur, fiskmeti). Upplýsingarnar, sem þessi aðferð gefur, hljóta því að verða götóttar, þótt þær geti farið nærri lagi um sumar matarteg- undirnar. En svo kemur og annað til greina. Að óreyndu má gera ráð fyrir, að fæði landsmanna sé breytilegt eftir árstíðum, kyggðarlögum (kaupstaðir, sveitir) o. fl. En það kemur hér hvergi fram, því að dagsfæðið, sem við reiknuðum út, var ineðaltal af ársneyzlu allrar þjóðarinnar — eins konar sam- nefnari fyrir margs konar mismunandi mataræði — og getur farið allfjarri því að gefa raunhæfa mynd af mataræði alls þorra landsmanna. Niðurstöður um mataræði, sem fengnar eru með þessari að- ferð, verður því að nota með mestu varúð, og gildi þeirra til samanburðar er mjög takmarkað.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.