Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1942, Blaðsíða 40

Andvari - 01.01.1942, Blaðsíða 40
36 Um manneldisraimsóknir ANDVARI Síðasti dálkur töflunnar sýnir, hve mikill hluti fæÖunnar er úr dýraríkinu, reiknað í hundraðshlutum af fæðugildinu, og er þar talsverður inunur á. I kaupstöðunum er að meðaltali 45,6% fæðunnar úr dýraríkinu, en í sveitunum 57,9%. Hér munar mestu á mjólkurmatnum og kornmatnum. Athyglisvert er það, hvað sveitirnar búa að miklu leyti við eigin framleiðslu. Öll dýrafæðan er innlend og auk þess nokkuð af jurtafæðunni (kartöflur o. fl.). Útlend er aðeins kornvaran, sykurinn og smjörlíki, alls um 37% af öllu fæðu- magninu, en innlenda fæðan er næStum því öll framleiðsla heimilanna. Þær upplýsingar, sem felast í þessum töflum, eru auðvitað ekki nema lítill hluti þess, sem við þurfum að vita um fæðið, til þess að geta nokkurn veginn dæmt um kosti þess og galla, en nokkrar bendingar gefa þær þq um heildarsamsetningu fæðisins á þeim heimilum, sem rannsóknirnar náðu til. Hér er ekki kostur rúmsins vegna að gera nánári grein t. d. fyrir hreytingum fæðisins eftir árstíðum, hvernig séð er fyrir vita- mínum og steinefnum ýmsum eða heilsufari fólksins; enda er, sem áður var getið, bráðlega að vænta fullnaðarskýrslu um allar rannsóknirnar. Athygli skal þó vakin á því, að það er einn höfuðkosturinn við mataræði okkar, hvað mjólkurneyzlan er rífleg, jafnvel í kaupstöðunum, miðað við það, sem víðast annars staðar ger- ist, og er vonandi, að svo haldist enn. Auk margra annarra kosta tryggir mjólkin okkur fyrir kalkskorti, og meiri hætta mundi verða á C-vitamínskorti, ef hennar nyti ekki við. Kart- öfluneyzlan þyrfti helzt að verða meiri. Og grænmetisneyzlan er ekki nærri því nógu almenn, reyndar varla að húast við því, að svo verði, fyrr en hvert heimili er farið að rækta nóg til eigin þarfa, því að markaðsverð á öllu grænmeti er allt of hátt, miðað við næringargildi þess. En svo þarf að finna hentuga aðferð til þess að gey’ma það.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.