Andvari - 01.01.1942, Qupperneq 78
74
Gisli Guðmundsson
ANDVARI
Um það leyti, sem kosningar fóru fram til löggjafarþingsins
í fyrsta sinn, voru íbúar landsins 72 þús. að tölu, og í Reykja-
vík bjuggu þá um 2 5001) manns. Mikill meiri hluti þjóðarinnar
átti þá heima í sveitum. Meira en hehningur hinna þjóðkjörnu
fulltrúa voru bændur, 17 af 30. Sjö voru prestar, allir búsettir
í sveit. Af hinum sex, sem enn eru ótaldir, voru þrír verzlunar-
menn, einn sýslumaður, einn skólakennari, og svo Jón Sigurðs-
son forseti, sem búsettur var í Kaupmannahöfn. — Konung-
kjörnu þingmennirnir sex voru allir embættismenn, tveir dóm-
arar úr yfirréttinum, biskupinn, amtmaðurinn syðra, landlækn-
irinn og einn prófastur norðanlands.
Eins og fyrr var sagt, kom fyrsta löggjafarþingið saman í
Reykjavík 1. júlí 1875. Söfnuðust þingmenn saman í þingsaln-
um í húsi latinuskólans og fóru þaðan til guðsþjónustu í dóm-
kirkjunni. Prédikunina flutti sr. Guðmundur Einarsson, pró-
fastur á Rreiðabólsstað á Skógarströnd, en hann var þá þing-
rnaður Dalamanna. Lagði hann út af 37. versi í 18. kapítula Jó-
hannesar guðspjalls: „Pílatus sagði þá við hann: Eftir því ert
þú þá konungur! Jesús svaraði: Já, ég er konungur; til þess
er ég fæddur og til þess kom ég í heiminn, að ég beri sannleik-
anum vitni. Hver, sem er sannleikans megin, heyrir mína
rödd.“
Landshöfðinginn, Hihnar Finsen, setti þingið í nafni kon-
ungs. Flutti hann í því sambandi sérstakan boðskap frá kon-
ungi. Þar segir svo: „Með stjórnarskránni er veitt fulltrúum
landsins fullnaðaratkvæði um málefni þess, full hlutdeild í lög-
gjafarverkinu og fjárveitingarvald að því, er snertir tekjur og
útgjöld landsins. Framfarir íslands, gæfa þess og hagsæld er
þannig að miklu levti komin undir fulltrúum þjóðarinnar
sjálfrar; en vér treystum því, að sú raun verði á, að hagsæld
landsins einmitt sé með þvi borgið.“
Kvaddi landshöfðingi síðan til elzta mann þingsins, Þórð
Jónasson háyfirdómara, að stýra kjöri forseta til bráðabirgða.
Þórður var konungkjörinn og þá 75 ára að aldri. Næstelztur
1) Tölurnar miðaðar við manntalið 1880 og ekki nákvæmar.