Andvari - 01.01.1942, Side 82
78
Gísli Guðmundsson
ANDVAHI
manna. Mun þingmönnum hafa þótt óþarft að minna lands-
menn sérstaklega á kostnað þann, er þeir hefðu af því að eiga
sjálfir löggjafarþing. Hins vegar var nú á lagður tóbakstollur
(áætlaður um 13 þús. kr. á ári) og áfengistollur aukinn. Lands-
höfðingi mælti gegn afnámi alþingistollsins og tóbakstollinum
á þessu þingi og vildi láta athuga mál þessi í milliþinganefnd.
Þau hlutu samþykki eigi að síður og lögin staðfestingu kon-
ungs. Póstgjöld voru og nokkuð hækkuð með breytingu póst-
laganna á þessu þingi.
Stjórnin lagði fyrir þingið frumv. um fjölgun héraðslækna
úr 9 upp í 17, en þingið hækkaði þá tölu upp í 20. Að tillögu
stjórnarinnar voru og sett ný ljósmæðralög. Ljósmæður voru
þá um 70 á öllu landinu, en nú skyldu amtsráðin ákveða tölu
þeirra. Þá voru og sett ný launalög (stjórnarfrumvarp). Eitt af
stjórnarfrumvörpunum, sem fram gengu, var frv. um „tilsjón
með flutningum á þeim mönnum, sem flytja sig úr landi í aðr-
ar heimsálfur“. Eins og gefur að skilja, voru lög þessi sett
vegna Ameríkuferðanna og skyldu tryggja útflytjendur gegn
mönnum þeim, er tóku sér fyrir hendur að sjá um vesturfarir.
Stjórninni var heimilað að selja prentsmiðju landsins fyrir 20
þús. kr., og kom frumkvæðið um það frá þinginu.
Fyrir þingið voru lögð, af þingmönnum, frumvörp um lög-
gildingu verzlunarstaða á Blönduósi, Vestdalseyri við Seyðis-
fjörð, Þorlákshöfn, Fjallahöfn og Kópaskeri. Tvö hin fvrst
nefndu voru samþykkt, en hin felld. Fellt var frumvarp Sig-
hvats Árnasonar, 1. þm. Rangæinga, um „tilsjón sveitarstjórna
með þeim, er þiggja af sveit“, en samkvæmt því skyldi oddviti
vera fjárhaldsmaður þurfamanna og þurfamaður skyldur að
„vinna það verk, sem löglegt er og ekki ofvaxið kröftum hans,
er sveitarstjórnin þar í hrepp skipar honum“, að viðlögðu fang-
elsi. Eigi mátti, samkv. frumvarpinu, hyggja þurfamanni utan
sveitar jörð án leyfis sveitarstjórnar. Tóku þingmenn þunglega
i mál þetta og töldu það ómannúðlegt, a. m. k. sumir hverjir.
Jón forseti tók lítinn þátt í umræðum hins fyrsta löggjafar-
þings. Þó gekk hann úr forsetastóli og tók til máls, er fjár-
kláðamálið kom ó dagskrá. Það var þá enn hitamál í landinu.