Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1942, Síða 96

Andvari - 01.01.1942, Síða 96
92 Þorkell Jóhannesson ANDVARI auga á bæinn að Gufuskálum. Hann stendur á uppgrónum malarkambi, kippkorn frá sjónúm. Þess sjást glögg merki, að hér hefur orðið uppblástur mikill og sandfok úr hrauninu og frá sjónum, þótt nú sé að mestu upp gróið. Um 1700 hefur uppblástur þessi sorfið svo fast að, að annar heimabærinn -- hér var löngum tvíbýli — er þá í auðn, en „túninu grandar sandfjúk í mesta lagi, svo að moka þarf af húsum eftir hvert norðan stórviðri“. Nú er hér grænt allt yfir að líta, en jörð sendin og snögglend, melhlaðka vex á strjálingi innan um grasið, alla leið heim að bænum. Hraunið myndar hér hálf- hring við sjóinn um talsvert víðlenda grasvelli, og stendur l>ærinn nær sjónum, heldur innar en fyrir miðjum hringn- um. Hér er hlýlegt í örmum hraunsins og efalaust ægifagurt í björtu veðri, með jökulinn á aðra hönd en úthafið á hina. All- langt utan við Gufuskála sjáum við vitann á Öndverðanesi gnæfa yfir svart og hrikalegt hraun. III. Margt ber fyrir augu ferðamannsins sumarlangan, sól- lijartan daginn. Þetta fjall, fossinn, áin — hvað mundi það nú heita, og bærinn þarna? í þúsund ár stóð bærinn hér, og nii spyr fáfróður maður: Hvað heitir þessi bær? Sé nokkur svo fróður með í ferðinni, fær hann sjálfsagt svar við spurningu sinni, nafn, sem hann ef til vill kannast við, en langliklegast hefur aldrei heyrt áður, og eftir stuttan tíma hefur hann sennilega gleymt því aftur. í raun og veru varðar hann ekkert um þennan hæ. Tími hans er mældur í dögum, í klukkustund- um. Með þessu áframhaldi verður hann í seinna lagi í áfanga- stað. Hvað varðar hann um þúsund ár? Ferðamaðurinn er eins og ryk vegarins, eins og skýhnoðri, er vindur feykir og horfinn er á einu augabragði. En í faðmi hraunsins stendur hærinn á uppgrónum malarkambi og ber hátt yfir græna velli, með jökulinn á aðra hönd og á hina reginhafið, eins í dag og fyrir þúsund árum siðan. En þá var það, sem mennirnir komu hér fyrst. Komu þeir einhvers staðar fram úr hrauninu, litill hópur þreyttra, sárfættra
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.