Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1942, Page 102

Andvari - 01.01.1942, Page 102
98 Þorkell Jóhannesson ANDVAUI gömlu konunnar. — Nú verðið þér að skoða fornmannaverkin í ytri vörinni, segir hún. Svo höldum við þangað. Hér gefur að líta merkilega sjón. Rudd hefur verið hátatröð gegnum ldungrið í fjörunni, fram í lægsta fjörumál. Braut þessi mun vera 2—3 metrar á lireidd og allt að 20 metra löng. Reyndar eru þessar tölur ágizkaðar, því ég mældi hana ekki, hafði ekki tök á því. Sjálf er tröðin talsvert djúp, þar sem klungrið er hæst, en hún sýnist enn dýpri vegna þess, að þegar hún var rudd, hefur grjótinu, se.m upp úr henni kom, verið rutt upp á barmana til hliðar í háar rastir, sum björgin ótrúlega stór. — Hér er Stórstraumshellan, segir gamla konan. Hún er ofar- lega í tröðinni, og eftir henni miðri er djúp rák, sem bátakilir hafa sorfið, er upp var sett og fram. Ég hafði séð svipuð verksummerki í vörunum í Rifi. Mér flugu þá í hug götu- skorningarnir í hellurnar í Búðahranni eftir skreiðarlestirnar undan Jökli, þögul vitni um þrotlausa elju og erfiði þúsund ára. Mér er sagt, að áður fyrri hafi það ekki tíðkazt að járna bátakilina. En furðu langan tima mundi það taka og mikla umferð, áður tré fengi unnið svo á harðri klöpji sem hér sjást merki til. Mér leizt svo á við fljótlega athugun, að undrum gegndi, ef verk þetta hefði unnið verið svo að segja með berum hönd- unum, án sprengiefnis til að rjúfa klungrið og án tækja til þess að lyfta stórgrýtinu, er losað varð, upp úr tröðinni og þó reyndar miklu hærra, er grjótdyngjurnar hrúguðust upp. Forn- mannaverk, kallaði gamla konan það. Ég veit þess ekki heldur neinar líkur, að slíkt mannvirki hafi hér framkvæmt verið á síðari tímum, enda mundi það þá ýmsum kunnugt vera. Þá er útveginum hér líka tekið að hnigna. En fyrir nærri 500 ár- um gengu héðan að vísu 14 bátar um vertið, en likast til nokkru fleiri áður fyrr, jafnvel allt að 20, þótt ekki verði það með vissu sagt. í þá daga, þegar héðan réru 100—150 ver- menn, hefur verið sjón að sjá verstöðina á Gufuskálum og ærnum mannkrafti á að skipa, ef stórt þurfti að vinna. Og hér hefur stórvirki unnið verið. En eitt þótti mér mestri furðu gegna um þessa fornu, löngu og djúpu bátatröð. Hún var að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.