Andvari - 01.01.1947, Blaðsíða 8
4
Stephan G. Stephansson
ANDVARJ
„undir Vatnsskarði“ (var í eyði 1917), í Víðimýrarsólcn, Seylu-
hreppi í Skagafirði. Ég hef verið sagður fæddur 4. okl. Það er
eflaust villa úr kirkju-skrá Víðimýrar kirkju. Tók fyrst eftir
því í vottorði prestsins, sem fermdi mig (Hannes Arnórsson
í Glaumbæ), sem liann gaf mér, þegar ég fluttist norður í Bárð-
ardal. Foreldrar mínir munu hafa vitað þetta og munað rétt.
Þau voru skynsöm, vel minnug og tímaglögg.
Heimili. Fluttist með foreldrum mínum 7 ára gamall (á
8.) að Syðri-Mælifellsá (hún er í eyði, fyrir löngu, að sögn),
Mælifellssókn, Lýtingsstaðahreppi, Skagaf. Þaðan, tveimur
árum síðar, að Viðimýrarseli, Víðimýrarsókn, Seyluhreppi
í Skagafirði. Þaðan, 15 ára, í vinnumennsku til Jóns bónda
Jónssonar og Sigurbjargar Stefánsdóttur, föðursystur minnar,
að Mjóadal í Bárðardal (í eyði 1917), Lundarhrekkusókn,
Ljósavatnshreppi, Þingeyjarsýslu. Foreldrar mínir vinnuhjú
á næsta bæ, Mýri, hjá Kristjáni bónda Ingjaldssyni og Helgu,
hálfsystur föður míns. Þaðan 1873 til Vesturheims með for-
eldrum mínum og systur, Sigurlaugu Einöru, síðar giftri
Kristni Kristinssyni, kynjuðiun úr Skagafirði, en öldum upp
á Austurlandi. Hún er mitt eina systkini, lifir enn, er 7 árum
yngri en ég. Höfum sífellt búið í næsta nágrenni. Fyrsta haust-
ið mitt í Vesturheimi skaut mér upp á tvítugt. Settist að fyrst
nálægt og í Staughton, Wisconsin. Það þorp er í Dane County,
nokkrar mílur norður af Milwaukee, um 20 mílur suður frá
Madison. Var við ýmsa vinnu, sem fékkst, sveitavinnu, tígul-
steinagerð. Fleytti mér nokkuð í ensku og norsku þegar vest-
ur kom. Það var að heiman haft, að rnestu sjálflært. Hef aldrei
á skólabekk setið hér í landi. Foreldrar mínir voru alla tíð á
mínum vegum, meðan þau lifðu til og eftir að hingað kom-
Eftir liðugt ár í Staughton fluttumst við þaðan með nokkr-
um ísl. fjölskyldum og numdum land í skógi, í Norður-
Wisconsin, í Shawano County, Greenvalley Township, Pulcifer
pósthúsi. Þar vann ég við skógarhögg að vetrum, um 50 mílum
norðar, en sveitavinnu að sumri, 75 mílum sunnar, en heima
við þess á milli. Foreldrar minir sátu landið. Ég ferðaðist milh