Andvari - 01.01.1947, Blaðsíða 81
ANDVARI
Við Oddastað
77
gert mikið af æsku landsins þreytt á bókum og bóknámi og
um leið valdið vanrækslu og hirðuleysi um meðferð móður-
málsins. En svo mjög sem ýmsum forystumönnum uppeldis-
málanna hefur mistekizt fram að þessu, þá er hættan marg-
föld, sem yfir vofir að þessu leyti, ef framkvæmd verður i
meginatriðum skólalöggjöf sú, er Alþingi samþykkti 1946.
En að vissu leyti er þó ávinningur að samþykkt þessarar lög-
gjafar, því að hún stækkar og margfaldar megingalla undan-
genginnar þróunar. En vegna óhófslegs tilkostnaðar við hina
nýju skólalöggjöf og mörg missmíði neyðir hún þjóð og þing
til að taka allt málið til endurslcoðunar og gerbreytingar frá
því, sem nú er. Allar aðgerðir til úrhóta í þeim efnum verður
að hyggja á því að gera námsþreytuna útlæga úr uppeldi þjóð-
arinnar, en láta í stað þreytu koma vakandi áhuga á móð-
urmálinu og fegurð í hegðun og sambúð mannanna. Vandinn i
þessum efnum er ekki ýkjamikill. íslendingar fundu fyrir
mörg hundruð árum í Odda og Haukadal, í Skálholti og á
Hólum hina réttu leið. Heimili og skóli unnu þar sainan í
órjúfandi heild. Framleiðslustörf, íþróttir og bóknám þarf að
fylgjast að, þegar á að skapa æskilega framtíðarhorgara i
hinu endurreista þjóðveldi.
Þeir ágallar, sem nú eru á uppeldi íslendinga, og þær um-
bætur, sein þarf að gera, verða ekki skýrðar í lítilli tímarits-
grein. Hér er aðeins drepið á nokkur atriði í því skyni að
hvetja menn til að hefja umræður og athuganir á núverandi
astandi og hvernig taka skuli á málinu. Þurfa margir menn
að Ieggja hönd á plóginn, ef vel á að fara. Til þess að inna
;d hendi fyrir mitt leyti þessa þegnskyldu hef ég í huga að rita
rmkkuð ýtarlega ritgerð um íslenzk uppeldismál í sérstaka
bók: „Heimili og skóli“. Verða þar gerðar tillögur um mjög al-
hliða breytingar á uppeldisskipulagi landsins og viðhorfi
bjóðfélagsins til hinnar uppvaxandi kynslóðar. Ég mun leitast
Vlð að sanna, að þó að jjjóðin þurfi marga skóla og með marg-
vislegu sniði, þá verði samt að gera skipulagið allt einfaldara
líkara hinu forna heimilisuppeldi. Börn eiga ekki að vera
1 skóla í skammdeginu, nema meðan dagsbirta er. Það á ekki