Andvari - 01.01.1947, Blaðsíða 33
ANDVAHI
Manntalið 1703
29
einstæða nýmæli, þar sem lögð er svo afarrílc áherzla á, að
manntalið verði almennt, með öllum landsmönnum nafngreind-
um undantekningarlaust. Prófessor Finnur Jónsson hugði, að
Arni Magnússon inuni sjálfur hafa átt þátt í uppkastinu,1)
en því var síðar allmikið breytt áður en það náði samþykki,
og í erindisbréfi því fyrir nefndina, sem út var gefið 22. maí
17022), er tilsvarandi grein (8. gr.) mikið breytt. Þar segir,
að nefndin skuli, með aðstoð sýslumanna og presta, gera mann-
tal á öllum heimilum á landinu og aðgreina þar bónda og hús-
freyju, hörn og vinnufólk, enn fremur manntal innansveitar
beiningamanna, svo og, ef kleift sé, annarra förumanna, þar
sem kvartanir hafi borizt um, að mikill sægur sé af þeiin,
landinu til milcils baga, og skuli því nefndin gera sér far um
að rannsaka, hvort þetta stafi ekki frekar af leti heldur en
skorti á vinnu, og hvernig megi setja þetta fólk til starfa, svo
að það geti unnið fyrir mat sínum í stað þess að íþyngja al-
inenningi með betli sínu.
Grein þessi virðist benda til þess, að fyrir stjórninni hafi
það vakað fyrst og fremst að fá með manntalinu upplýsingar
uin förumenn og betlara, þar sem % greinarinnar liljóða ein-
göngu um þá. Hins vegar er ekki tekið fram, að tilgreina skuli
hvern mann með nafni og engin sérstök áherzla lögð á, að
nianntalið skuli ná til allra undantekningarlaust.
Árni hélt nú heim til íslands, og komu þeir báðir nefndar-
menn, Árni og Páll, til Alþingis, þar sem lesið var upp bréf
'un jarðabókarverk þeirra. En það var ekki fyrr en um haustið,
nð þeir sendu út bréf til allra sýslumanna um töku mann-
tnlsins. Er það samhljóða til allra sýslumanna, en dagsett
ýniist á Helgafelli 5. október eða Staðastað 21. október. Eru
þar gefin nákvæm fyrirmæli um töku manntalsins og það að
°Hu sniðið eftir fvrirmælunum í upphaflega uppkastinu. Gæti
lJað bent til þess, að Árni sjálfur kynni að hafa átt uppástung-
una að manntalinu eða að minnsta kosti verið fyrir hans til-
1) Finnur Jónsson: Ævisaga Árna Magnússonar bls. 58.
2) I.ovsamling for Isiand I 584.