Andvari - 01.01.1947, Blaðsíða 15
ANDVAHI
Stephan G. Stephansson
11
Ég man það eitt, að þvert ofan í alla aðra fannst niér meira um
Bjarna en Jónas.
Stjórnmál. Meðan ég var í Wisconsin, greiddi ég víst „Re-
publikum" atkvæði. Sá stjórnmálaflokkur hélt sér þá uppi
meðal alþýðu á orðstír Lincolns forseta og sínum eigin, frá
þrælastríðinu. 1 Dakota fjdgdi ég „Demokrötum". Sá flokkur
lofaði þá lækkun á innlendri tollvernd. í Canada lagði ég lag
við „Liberala". Þeir hétu frjálsari verzlun, t. d. við Banda-
rikin, og reyndu til að smeygja fram af sér hernaðarhlekkj-
um við England, t. d. Laurier. Síðan „Progressive“- eða
bændaflokkurinn hófst hér nýlega, hef ég aðhyllzt hann. Hitt
hýKíí ég. að iðnbræðralag — „classpolitik“, „bolshevisme“ -—
verði næsta stig, helzt um allan heim, og að það, með vaxandi
skilningi, leiði til samvinnu frá samkeppni, manna milli, því
sérhver „stétt“ finnur sjálf bezt, livar sinn skór kreppir að,
°g getur valið vegi til úrbóta, án þess réttur hluti hinna „stétt-
anna“ sé fyrir borð borinn, sé vilji og skynsemi látin ráða,
en ekki atkvæða-magn, þó sumar „stéttir“ þurfi alveg að af-
nema, t. d. hermannanna. „Lýðræði“, sem er hreint og beint,
hefur þann kost yfir annað fyrirkomulag, að það er eins konar
>.alþýðuskóli“ mannanna í að búa saman sem sanngjarnast
°g hagfelldast. Gerir, auðvitað, glappaskot, og þau kannske
grimmileg, en getur ekki slengt skuldinni af sér á „æðri völd“.
Verður sjálft að duga eða drepast á eigin ábyrgð.
Sveita-störf. Á ýmsum stöðum, sem ég hef dvalið á, hef ég
lekið ofurlítinn þátt í sveitamálum, meðan ekkert skipulag
Var á þau komið. Skirrzt við að neita því með öllu, ef ske
kynni, að ég gæti orðið til gagns. Hef um tíma verið í sveita-
sljórn („Supervisor", ,,Councillor“), sveitadómari („Justice
°i Peace“), vitnisburðarvottur („Commissioner of Oaths“),
skólahéraðs-ritari („Secretary of School“) og í sjö til átta ár
mtari og féhirðir hlutafélagsins íslenzka i smjörgerðinni hér
ú Markerville („The Tindastoll Butter and Cheese Manufac-
toring Co.“). En við allt þess konar hef ég losað mig eða afsagt,
ems fljótt og mér fannst ég við koma, enda urðu þá aðrir til,
er frá leið og laun urðu í boði, því oft gerði ég slikt fyrir ekk-