Andvari - 01.01.1947, Blaðsíða 38
34
Þorsteinn Þorsteinsson
ANDVARl
að manntalið 1703 væri harla fátæklegt í samanburði við nú-
tímamanntöiin, en fyrirferðin er þar harla lélegur mælikvarði.
Það voru ekki til nein prentuð eyðublöð þá til þess að útfylla,
svo að hver hafði sinn liátt á því, sem honum sýndist, hvernig
skýrslan var skrifuð. Manntalið úr hverjum hreppi er venju-
iega aðeins á örfáum smáörkum, afarþétt skrifað og stundum
með bundnu letri og skammstöfunum. Er það ljós vottur þess,
hve pappír hefur verið afarmikið sparaður í þá daga, enda
segir svo í Grímsstaðaannál, er skýrt hefur verið frá fyrir-
skipunum nefndarmanna um manntalið, þar sem uppskrifaðir
skyldu meðal annars „húsgangskarlar og kerlingar, saint ogsvo
landhlauparar og þjófar“, enn fremur um uppskrift á jörðum og
öllum kvikfénaði, „þá var pappír dýr í sveitum víða, er öllu
þessu var aflokið*1.1) En á þessum litlu blaðsneplum er hver
maður á landinu tilgreindur með nafni og aldri og stöðu sinni
á heimilinu, ásamt nokkrum öðrum nánari upplýsingum. Það
er ekki fyrr en á 19. öld, að það fer að tíðkast að taka mann-
töl með nöfnum ibúanna, og flest manntöl á 18. öldinni voru
með öllu nafnalaus, eða þá aðeins tilgreint nafn húsbónda,
en annað heimilisfólk aðeins með tölu. Það má því segja, að
manntalið 1703 hafi verið langt á undan sínum tima, og sumir
telja jafnvel, að það hafi verið hið fyrsta manntal af slíku
tagi. Það mun þó vera of langt gengið, því að í nýlendunni
Nýja Frakklandi i Kanada var á ákveðnum degi árið 1666
tekið manntal með tilgreindum nöfnum allra íbúanna ásamt
aldri, kynferði, hjúskaparstétt og atvinnu.2) Nýlenda þessi
var þá undir stjórn Frakldands, og er talið, að hugmyndin
um manntalið sé runnin frá Colbert, fjármálaráðherra Loð-
víks 14. Árið 1666 voru ekki í nýlendunni nema 3215 manns
eða eins og í vænni sýslu á íslandi 1703, svo að manntal þetta
hefur ekki verið neitt viðlikt því eins mikið fyrirtæki eins og
íslenzka manntalið 1703, en var hins vegar endurtekið marg-
sinnis, alls 36 sinnum fram til 1739 eða að jafnaði annað hvert
1) Annálar III 522—3.
2) Census of Canada 1931, Vol. I i>. 32.