Andvari - 01.01.1931, Blaðsíða 20
16
Síra Eirtkur Briem, prófessor.
Andvari
bætur til Borgfirðinga, er þeir gætu við unað, lagði
Eiríkur fram tillögu um það, hvernig haga mætti verð-
inum næsta sumar, svo að hann yrði miklu ódýrari en
áður, en þó jafntryggur eða tryggari, og komst að þeirri
niðurstöðu að kostnaðurinn allur — þar með skaða-
bætur til Borgfirðinga — þyrfti eigi að verða nema 8
aurar á kind. Þessi niðurstaða þótti fundarmönnum
miklu betri en þeir höfðu vænzt. Og náðu tillögurnar
samþykki fundarins; var þar með bundinn endi á málið.
Reyndist kostnaðaráætlun Eiríks furðu nákvæm, því
að kostnaðurinn varð eigi nema 8V20 úr eyri á kind.
Eitt árið, meðan Eiríkur var prestur í Steinnesi, varð
meðalalinin á verðlagsskránni i Húnavatnssýslu miklu
hærri en áður hafði verið og mun hærri en í nágranna-
sýslum. Var mönnum það viðkvæmt mál, því að það
leiddi til þess, að skattar og önnur opinber gjöld hækk-
uðu, því að þau voru reiknuð eftir verðlagsskránni-
Vakti þetta mikla óánægju í sýslunni. Hugðu margir
að þeir, sem undirbjuggu samning verðlagsskrárinnar,
hefðu ruglazt í reglum þeim, er fylgja skyldi við undir-
búning hennar, og sumir voru svo illgjarnir að halda,
að þetta stafaði af samtökum meðal presta og hrepp-
stjóra, er undirbjuggu verðlagsskýrslurnar, til þess að
hækka opinber gjöld á almenningi. — En þeir kváðust
í öllu hafa fylgt settum reglum um skýrslugerðina, en
gátu þó eigi gefið fulla skýringu á því, hvernig á hækk-
uninni stæði. Var þá leitað til síra Eiríks og hann beð-
inn að grafast fyrir orsakirnar. Hann komst að þeirri
niðurstöðu, eftir að hann hafði kynnt sér málavöxtu, að
verðlagsskýrslurnar, er verðlagsskráin væri reiknuð eftir
væru réttar og samdar lögum samkvæmt, en fann, að
það voru tvö atriði, sem væru orsök til hækkunarinnar.
Einn gamall bóndi í sýslunni, sem verið hafði blindur í