Andvari - 01.01.1931, Side 22
18
Síra Eiríkur Briem, prófessor.
Andvari
þess að geta fengið sem gleggstar upplýsingar um fóður-
þörf fénaðarins og heymagnið í ákveðnu teningsmáli
heys í heystæðunum, o. fl. Með þessu móti aflaði hann
sér gagna til þess að geta gert áætlanir um ýmislegt,
sem að búskapnum laut. Hafði hann ánægju af að fást
við slíkar búskaparáætlanir og gera sér grein fyrir því,
hversu ýmsu mætti haga, svo að búskapurinn yrði sem
arðvænlegastur.
Vmsir Húnvetningar höfðu þá mikið af hrossum; taldi
Eiríkur hrossaeignina eld í búi, þótti hrossin hagafrek í
engjum og heimahögum. Hann hafði því eigi nema 5—6
áburðarhesta og einn reiðhest. Kýr hafði hann eigi fleiri
en þurfa þótti til að hafa nægilega mjólk handa heimilinu,
en lagði aðaláherzluna á að auka sauðfjáreignina. Hann
byrjaði búskapinn með 100 fjár, en síðustu árin hafði
hann um 430 fjár og 4—5 kýr.
Hann gerði ýmsar umbætur á jörðinni og kostaði
þær að öllu leyti sjálfur. Þegar hann kom að Steinnesi
var helmingur engjanna votur, en hann lét ræsa þær
fram og þurkaði, og 1878 var hann búinn að koma á
þær áveitu.
Eiríkur efnaðist vel á búskapnum. Taldi hann svo
sjálfur, að hús það, sem hann lét reisa í Reykiavík, er
hann fluttist suður, hefði verið reist fyrir arð af búinu í
Steinnesi. Þau hjónin voru hjúasæl, meðan þau bjuggu, ,
því að brátt jkomst það orð á f sveitinni, að þau væru
góð hjúum sínum. Höfðu þau oftast 4 vinnumenn og
4 vinnukonur. Urðu sumir vinnumennirnir myndarbændur
síðar og létu svo um mælt, að þeir hefðu bæði mannazt
og efnazt við dvölina í Steinnesi.
Eg hefi kynnzt gamalli konu, er var vinnukona í
Steinnesi, hjá síra Eiríki. Lofaði hún mjög heimilið í
Steinnesi og kvaðst aldrei hafa kynnzt jafngóðum hÚ6-