Andvari - 01.01.1931, Page 123
Andvari
Hýsing sveitabýla.
119
Hús þau, sem lýsi hefir verið hér að framan, eru
vitanlega engar hallir, Þau eru miðuð við brýnustu þarfir
á smájörðum, og annað ekki. Erlent efni í fyrra húsið
myndi kosta um 2700 kr., ásamt miðstöðvareldstó, og
miðað við Reykjavíkurverð á byggingaefnum. í síðara
húsið yrði það um 3500 kr., ef gert er ráð fyrir kjallara
undir hálfu húsinu að eins. Annar kostnaður verður ætíð
nijög misjafn; fer það eftir staðháttum og eftir því, hvað
bóndinn vill og getur hjálpað sér sjálfur. Sumum þykir
sennilega lítið tillit tekið tll framtíðarinnar, og má vera,
3ð svo sé. Þó vitum við sjaldnast, hvers framtíðin krefst
• þeim efnum, og því miður eru ástæður flestra smá-
bænda þannig, að þeir hvorki mega eða geta tekið
‘illit til annars, en sinna eiginþarfa, eins og þær eru
"ú, og eins og líkurnar benda á, að þær verði um all-
roargra ára skeið, eftir hýsingu jarðarinnar. En þegar
svo sá tími rennur upp, að efni og ástæður krefjast
stærri húsa, má ætíð bæta við. Þegar húsin eru lág,
eins og hér er gert ráð fyrir, er það tiltölulega auðvelt.
Þannig má t. d. lengja bæði húsin, sem sýnd eru á
ttiyndunum, til hægri, og er þar gott rúm fyrir tvö her-
bergi við hvort, ef haldið er fullri breidd húsanna.
Vafalaust fellur mönnum húsalag þetta misjafnlega í
seð; svo er jafnan, ef vikið er frá hinu venjulega.
Markmiðið er, að gera húsin einfaldari að gerð og þar
fiieð stuðla að því, að hýsing sveitabýla geti aftur orðið
að mestu heimilisiðnaður. Ég efast ekki um, að margir
8efi lágu húsunum illt auga, finnist þau ekki nógu
*reisuleg* eða »kaupstaðarleg< o. s. frv.; um þann smekk
er ekkert að segja. Þá eru líka aðrir, sem virðast halda,
að háu húsin sé ódýrari vegna þess að þakstærð er jöfn,
hvort heldur húsið er einlyft eða marglyft. En þeir at-
huga ekki verkeyðsluna, sem áður er lýst, ekki heldur