Andvari - 01.01.1931, Side 124
120
Hýs'mg sveilabýla.
Andvari
kosinað við stigagerð 03 það rútn, sem þeim er nauð-
syniegt, og ætíð kemur hart niður á húsum með litlum
grunnfieti. Þá er það auðsætt, að hirðing húsanna verður
léttari, ef ibúðin er á einni hæð. Þegar allt þetta er at-
hugað, fer þaksparnaðurinn að verða dálítið vafasamur.
Hlu húsin urðu til í bæjum og borgum, þar sem
iandrými er takmarkað og lóðir dýrar. Þar er allra ráða
neytt, til þess að koma sem mestu húsrými á sem
minnstan blett. Eina úrræðið er því, að hafa húsin há.
Einni hæð er bætt á aðra ofan og þannig urðu á end-
anum til skýjaskafar Bandaríkjamanna, sem gnæfa nú
um 85 stofuhæðir yfir strætin.
Landrými íslenzkra sveita krefst ekki, að hatdið sé í
svipaða áff, og menn munu einnig sanna, að lághýsin
verða ætíð hlýlegust og samgrónust íslenzkri náttúru.
Ef nisskrá:
Bls.
Síra Eirikur Briem, prófessor (meö mynd). Eftir Gu6-
mund adjuukt Bárðarson, prófessor.................. 3— 47
Fiskirannsóknir 1929—1930. Skýrsla lil sljórnarráðsins.
Eflir Dr. Bjarna Sæmundsson, f. yfirkennara ....... 48—110
Hýsing sveitabýla (meö 2 myndum). Eftir Þóri Bald-
vinsson, ráðunaut í húsagerð....................... 111—120