Andvari - 01.01.1919, Blaðsíða 10
VI
Síra Friðrik J. Bergmann
[Andvari.
Jónasson hreppstjóra Bergmanns í Garðsvík, Sigfús-
sonar Bergmanns, og kona hans Halldóra Bersadóttir.
Sigfús Bergmann föðurfaðir síra Friðriks bjó síðast
á Þorkelshóli og lézt þar 7. marz 1844, kominn hált
á áttræðisaldur. Hann var son Sigfúsar prests á Rip
og Felli, Sigurðssonar prests á Barði í Fljótum,
Einarssonar á Hraunum Sigurðssonar. Kona Sigurð-
ar prests var Ragnhildur Guðmundsdóttir prests á
Helgafelli, Jónssonar prests á Helgafelli, Guðmunds-
sonar prests á Þæfusteini undir Jökli, Jónssonar,
Guðmundssonar, Hallssonar sýslumanns, Ólafs-
sonar prests í Saurbæ, Iíolbeinssonar, Sigurðssonar.
— Kona Sigfúsar Bergmanns á Þorkelshóli var
Guðrún Aradóttir frá Mói, Jónssonar á Brúnaslöðum,
Andréssonar á Brúnastöðum, Jónssonar.—Kona Jón-
asar Bergmanns hreppstjóra og móðir JónsBergmanns
var Valgerður Eiríksdóttir prests á Þóroddsstað, Þor-
leifssonar prests sama staðar, Sæmundssonar prests
sama staðar, Jónssonar prests í Reykjahlíð (f 1733),
Sæmundssonar bónda á Þverá í Fljótum, Þorsteins-
sonar hreppstjóra í Stórubrekku í Fljótum, Eiríks-
sonar. Af Þorsteini þessum er komin Stórubrekkuætt,
fjölmenn mjög og að ýmsu merkileg1).
Halldóra móðir síra Friðriks var dóttir Bersa bónda
á Gauksstöðum á Svalbarðsströnd, Bjarnasonar bónda
á Reykjum í Fnjóskadal, — bróður Halldórs föður
Guðrúnar móður Benedikts Kristjánssonar próf. í Múla
—, Jónssonar bónda á Reykjum, sem Reykjaætt er af
komin, góð ælt og fjölmenn, Péturssonar á Reykjum,
Sigurðssonar í Bakkaseli í Fnjóskadal, Magnússonar
á Bakka. — Kona Bersa og móðir Halldóru var Sig-
1) Sbr. P. Z.: Ættir Skagíiröinga, bls. 149.