Andvari - 01.01.1919, Side 98
78
Fiskirannsóknir 1917 og 1918
[Andvari.
Af yíirlitunum sést það, að tvævetri fiskurinn hefir
náð 9—19 cm lengd á tímabilinu 12. ág. til 16. sept.,
þrevetri fiskurinn 13 — 24 cm lengd og fjögurra vetra
íiskurinn 17 — 32 cm lengd. Fljótt álitið virðist yngri
íiskurinn úr Faxaflóa vera stærri en fiskur á sama
aldri úr Patreksfirði, en stærðarmunurinn getur legið
í því, að hann er veiddur rúmum mánuði seinna á
sumrinu, einmitt á þeim líma, sem vöxturinn á upp-
vaxandi fiski er örastur ár hvert. Lítur því ekki út
fyrir, að neinn verulegur stærðarmunur sé á fiskin-
um á sama aldri frá norðanverðri og sunnanverðri
ströndinni, enda er það í samræmi við það, að þessi
liskur á heima og gýtur alt í kring um landið. Ann-
ars vantar enn fisk frá köldustu ströndum landsins
til samanburðar. Einnig vantar að mesln leyti vetur-
gamlan fisk og fisk á 1. ári, til þess að sjá, hvernig
vextinum er háttað á yngsta aldursskeiðinu. IJað
mætli ef til vill (að dæmi Norðmanna) reiknast á
kvörnum þeirra fiska er rannsakaðir hafa verið, en
eg tel það vafasamt, að vöxtur kvarnanna sé ná-
kvæmlega hlutfallslegur við vöxt alls íisksins.
Annars er vöxturinn æði mismunandi á báðum
stöðunuin, því að þrevetrir og sex vetra fiskar geta
verið jafnstórir (um 22 cm langir), eins og sjá má
á yfirlitunum, en hvort þessi munur stafar af ólíku
eðli íiskanna sjálfia eða af ólíkum lífsskilyrðum, er
eigi auðið að vita.
Af eftirfarandi samanburði á stærðinni á sandkola,
sem Dr. Johs. Schmidt veiddi á 25—0 m. dýpi á
Patreksfirði 22. — 26. júní 1904 og á sandkola, sem
eg veiddi á 12—0 m. dýpi í Faxaflóa 3.—16. ág.,
með samskonar veiðarfæri (álavörpu), sést það, að
stærðin á fiskinum er yfirleitt svipuð, og gefur um