Andvari - 01.01.1919, Page 82
02
Fiskirannsóknir 1917 og 1918
(Andvari-
um af 10 fiskum, sem liöfðu veiðst á Bankanum
nokkurum dögum áður en eg kom til Eyraibakka.
Af þessum fiskum voru 2 þrevetrir, 4 fjögurra, 3
fimm og 1 sex vetra.
Eg hefi hér skýrt frá aldri og vexti á nál. 250
íiskum frá suðurströndinni, og þar með fengið dá-
góða hugmynd um, hvers konar íisk þar er um að
ræða á sumrin. Allur þorrinn af honum er ungur og
upprennandi fiskur, en aldur hans og stærð fer þó
mikið eflir því, live djúpt hann er veiddur. Fiskur-
inn úr Grindavíkursjó, sem veiddur var á 25—30
fðm. dj'pi, er nærri allur tvæ— þrevetur, liskurinn
undan Kiísuvikurbergi, veiddur á 40—60 fðm. dýpi,.
er flestur 4—6 vetra og fiskurinn af Selvogsbanka,.
60 — 70 fðm. dýpi, á öllum aldri frá 3—12 vetra, en
flestir 4—7 vetra. Á grunni, þar sem er 20—30 lðm.
dýpi, er mest megnis mjög ungur fiskur (þyrskling-
ur), en á meira dýpi, 40 fðm. og dýpra, mestmegnis-
eldii íiskur (stútungur og þorskur). Eg hygg að á
öllu svæðinu frá Reykjanesi austur í Selvogssjó s&
mikil mergð af uppvaxandi þorski (þyrsklingi) á
öllu dýpi frá 5 fðm. (þörunum) og út á 25 — 30 fðm.r
enda er þar viðast hvar hraunbotn og gnægð krabba-
dýra og slöngustjarna til ælis fyrir liinn unga fisk
og mér er sérstaklega kunnugt um tvö svæði í
Gi indavíkursjó, Hælsvík fyrir vestan Ivrísuvíkurberg
og «Vikurnar« milli Slaðaibergs og Reykjaness, þar
sem all af er gnægð af smáfiski, vor, sumar og fram
á haust og oft mikið aflað af honum á þessum slóð-
um, þegar veður leyfir og menn hafa tíma til. Eg
lít því á alt þetta umrædda svæði sem mikilsvert
uppvaxtarsvæði fyrir þorsk og er það mikil bót í
máli, að það er svo mjótt, að það nær hvergi út