Andvari - 01.01.1919, Blaðsíða 153
Andvari.]
Vitakerfi íslands
133
lýsi 22 sjómílur og liinn á Papey, sem vér leggjum
til, að lýsi minst 20 sjómílur. Nú er fjarlægðin milli
Seleyjar og Papeyjar ekki nema rúmar 28 sjómílur
og verður því ekki betur séð, en fullforsvaranlega
sé vitað á þessu svæði, þótt ekki sé farið að bæta
tveim stórvitum við, inn í það Ijóshaf sem fyrir er,
Boðar þeir, sem lykja að Breiðdalsvík, eru lengst
fjórar sjómilur frá landi, svo að vegna þeirra, úr því
að þeir eru ekki lengra undan landi, hlýtur að nægja
lítill hættuhornsviti á báðum þessum stöðum.
Sama er að segja um vitann á Hvalsnesi liinu
eystra, að þegar komnir eru viðunanlegir vitar í
Papey og Stokkanes, þá getur ekki komið til nokk-
urra mála, að farið sé að byggja stærri vita á Hvals-
nes. Par verður að nægja minni viti, með hættuhorn
yfir Brökur og Hvíting, sem að eins eru tæpar fjór-
ar sjómilur frá nesinu. Vér leyfum oss eins og fyrr
að vísa til vilaskortsins, sem á að taka allan vafa
af um réttmæti þessarar tillögu.
1. e) Selnesviti vid Skagafjörð: Frumvarpið gerir
ráð fyrir minni vita á Selnesi. Penna vita teljum vér
mjög ónauðsynlegan og leggjum það til, að þar verði
ekki bygður viti fyrst um sinn, svo framarlega, sem
bygður er viti á Beykjadisk. Viti, sem þar verður
bygður, þarf ekki að vera stór viti, því að eftir stað-
háltum nægir að eins einn viti, en sjálfsagt er, að liann
sé hornviti, sem hoði hættuna af skerjum þeim, sem
eru bæði utan og innanvert við Drangey. Ef vili
þessi verður settur á þenna stað með því fyrirkomu-
lagi, sem um getur hér að ofan, þá er örugg sigl-
ingaleið að næturlagi inn Skagafjörð að vestan.
1. f) Hegranesvili: Frumvarpið gerir ráð fyrir, að
bygður verði slór viti á Hegranesi. Vér leggjum aftur