Andvari - 01.01.1919, Blaðsíða 68
48
Fiskirannsóknir 1917 og 1918
[Andvuri.
þegar sundin milli ánna voru ófær róðrarbátum; en
þangað geta ekki mótorbátar flúið, því að þar er
ekkert afdrep fyrir þá, þegar sundin á hinum stöð-
unum eru ófær, nema í SV.—V.-átt. Þar er aðdjúpt
og hrein leið inn að landi, en þar er ekkert skjól i
A-., S. —V.-átt, og því hafa menn hugsað um að gera
þar varnargarð, svo að afdrep fengist fyrir mótor-
báta. Mælingar liafa farið fram og áætlun gerð um
garð (Jón ísleifsson verkfræðingur) og talið að hann
mundi með öllu kosta nál. 700,000 kr. Aðrir hafa
verið að bollaleggja um fullkomna fiskiveiða- og
verzlunarhöfn á þessum stað og eflaust mælti gera
þar ágæta liöfn. En hún mundi kosta mikið fé
(margar miljónir)1).
Þorlákshöfn liggur ágætlega við Selvogshanka, ekki
siður en Eyrarbakki og Stokkseyri, en hún er út úr
og afskekt í gróðurlausu og vatnslitlu plássi og Ólf-
usá skilur hana frá ílestum bygðum austanfjalls. —
Fyrir utan hana kemur Selvogur; þar var fyrrum
mikið úlræði, sem lagðist niður að mestu, en er nú
heldur að aukast aflur (7 skip gengu þaðan í vetur
er leið), en mótorhátahöfn getur ekki verið um að
ræða.
Lengra vestur er Herdísarvík. Hún liggur lika á-
gætlega við og þar er allgott útræði og vel varið,
nema SA. — S.-átt; þar er og aðdjúpt og hreinar leiðir
að landi og spurning, hvort ekki mundi hetra að
gera þar höfn en í Forlákshöfn, og víst er að þar
yrði engin hætta á sandfyllingu, sem ekki er örugt
1) Síðan petta var ritað, lielir Kirk birl áællun um liafn-
nrgerð þarna, og verður hún ekki ódýrari en eg gerði ráð
fyrir.