Andvari - 01.01.1919, Síða 29
Andvari.]
Stjórnarbylting á skólasviöinu
9
vekur tilfinningu fyrir fegurð. Einnig alt er vekur
og eflir skilning, samúð og áhuga á lífi þjóðanna,
einkum þeirra, sem skyldar eru og viðskifti hafa við
fósturjörð nemendanna.
Það er mjög varhugavert að sníða námskrána eftir
þörfum nemandans eins og menn hugsa sér þær í
framtíð hans. Fyrst og fremst veit enginn á hvers
konar fræðum honum ríður mest, fer það alt eftir
stöðu hans og ástandi. í öðru lagi er oftast fallið í
gleymsku það af barnaskólanáminu, sem hann þarf
á að halda á fullorðinsárunum, enda fljótfengið ef
maðurinn hefir snemma vanist á réttar námsaðferðir.
í þriðja lagi er endalaus breyting á þeim atriðum,
sem lögð eru á minnið í skólanum. Fólkstala breyt-
ist, og sömuleiðis stjórnarástand. Nýjar uppgötvanir
gefa nýjar tölur um hæðir fjalla, lengd fljóta o. s. frv.
Reynslan hefir sannað, að börnin í skólunum, þar
sem viðfangsaðferðin er notuð, afla sér að jafnaði
langtum víðtækari þekkingar. Þau fræði, sem þau
afla sér sjálf með vissum tilgangi, og áhuga á að
leysa úr viðfangsefnum sinum, verður þeirra eign og
gleymist seint.
Oft hefir allur bekkurinn sama viðfangsefni. —
Stundum flokka börnin sig um undirdeildir sama
viðfangsefnis. Fara þau svo heim úr skólanum full
áhuga á að verða fær um að veita sem mesta hjálp,
til að greiða úr viðfangsefninu. Eeita þau sér ekki
að eins þekkingar í bókum, heldur og með því að
spyrja aðra og sjá og rannsaka sjálf. Þegar þau
koma svo í skólann hefir hvert þeirra eitthvað nýtt
að færa til úrlausnar viðfangsefninu. Verður barninu
það ánægjulegra að láta þar í Ijós sínar eigin hugs-
anir, heldur en ef öll börnin tæki sömu hugsunina