Andvari - 01.01.1919, Blaðsíða 34
14
Stjórnarbylting á skólasviðinu
[Antlvari.
í kenslumálum eru þessi raunvísindi að vonum á
bernskuskeiði. En af þeirri stjórnarbyltingu, sem þau
hafa þegar orsakað, má ráða, að þau muni móta
allar aðferðir og ástand skólanna í framtíðinni.
Það er léttvægt, sem kennararnir hafa á að byggja
án slíkra mælikvarða. Einkunnir þær, sem börnum
eru gefnar, hafa í raun og veru enga þýðingu. Það
sem einn kennarinn kallar vel gert lcallar annar lak-
lega gert. Jafnvel þar, sem öllum kemur saman, t. d.
að eitt barnið sé öðru betra, einn skólinn öðrum
fremri, þá er ókleift að svara spurningunni »hvað
miklu munar?« Allra sízt með þeirri nákvæmni, sem
á sér stað, ef ræða er um þyngd tveggja steina, lengd
tveggja lína o. s. frv.
Það var hlegið að því fyrir tuttugu árum, þegar
farið var að tala um að finna upp mælikvarða, til
þess að mæla með mannvitið og þekkinguna og á-
rangurinn af skólastarfinu. það hefir líklega hljómað
eins kynlega í eyrunum á fólkinu og hugmyndin um
hitamæli, fyrir þeim, sem aldrei hefir heyrt hans
getið. En svo var farið að gera lilraunir við tilraun-
irnar sjálfar, mæla gildi mælikvarðanna. Fjöldi kenn-
ara heíir mælt hæíileika og framför sömu barnanna.
Sömu tilraunirnar margendurteknar af nýjum og
nýjum mönnum og niðurstaðan orðið svo að kalla
liin saina. Uppgötvunum á þessu sviði fjölgar óðum.
Nýir mælikvarðar koma upp, til að mæla ný atriði,
og þeir gömlu eru endurbættir. Tilraunirnar eru
margar og margvíslegar eftir því, hvort þær eiga að
mæla dómgreind eða leikni, flýti, nákvæmni, í hvaða
námsgrein sem er, og yrði efni í margar bækur ef
lýsa ætti því öllu til hlítar.