Fréttablaðið - 12.09.2009, Síða 36

Fréttablaðið - 12.09.2009, Síða 36
Malmö – borg garðanna Malmö liggur á mörkum Dan- merkur og Svíþjóðar og má segja að hún bjóði upp á það besta úr báðum löndum. Úrval-Útsýn er með þriggja daga pakkaferðir til Malmö í haust. Flogið er til Kaupmanna- hafnar á fimmtudegi og aftur heim á sunnudegi. Það er auðvelt að finna sér eitt- hvað til viðurværis í Malmö, sem er mikil menningar- og mennta- borg. Sjarmerandi torg, steinlagðar götur og fjöldinn allur af söfnum og smáum almenningsgörðum gera það að verkum að auðvelt er að gleyma því hvað tímanum líður. Þar er líka að finna hæstu byggingu Svíþjóð- ar, Turning Torso, sem arkitektinn Santiago Calatrava hannaði. Hallir og herrasetur í Wiesbaden Hallir og herrasetur eru á meðal þess sem dást má að á vappi um götur Wiesbaden. Þangað er Ice- landair með ferðir í haust en flogið er til Frankfurt og kemur fólk sér sjálft með lest eða bíl til Wiesbaden. Borgin stendur við Rínarfljót, skammt vestur af Frankfurt. Þar eru margir skrúðgarðar og önnur græn svæði þar sem gaman er að setjast niður á bekk og fylgjast með mannlífinu. Þar er líka auðvelt að seðja hungrið og slökkva þorstann en í borginni eru fjölmargir fyrsta flokks veitingastaðir, vínstofur, krár og gömul kaffihús. Þröngar götur Sevilla Fólk í ferðahug ætti að skoða fjög- urra nátta helgarferðir Heimsferða til Sevilla, höfuðborgar Andalúsíu- héraðs. Sevilla er fögur borg, rík af sögu og stórfenglegum byggingum, svo sem Dómkirkjunni með Giralda- turninn, þriðju stærstu kirkju í heimi. Í miðborginni og hinum eldri hlutum borgarinnar er einstök stemning, þröngar götur, veitinga- og kaffihús og heillandi torg. Auk þess er óendanlegt úrval verslana í borginni. Gríptu þetta einstaka tækifæri og smelltu þér í einstaka helgarferð þar sem tíminn nýtist einstaklega vel, en flogið er út að morgni fimmtudags og komið heim að kvöldi mánudags. Verð á ferðinni er 94.400 krónur á mann, miðað við gistingu í tvíbýli í fjórar nætur með morgunverði. Vodka eða bjór í Varsjá Hvort sem maður sækist eftir því að skoða gamlar og fallegar bygg- ingar eða fara út að drekka vodka og skemmta sér er gaman að koma til Varsjár. Tilvalið er að skella sér þangað í helgarferð á eigin vegum en Iceland Express flýgur til Var- sjár á hverjum föstudegi. Í borg- inni er iðandi mannlíf enda er hún stærsta borg Póllands en þar búa um tvær milljónir manna. Vest- ræn og austræn áhrif blandast í borginni á skemmtilegan hátt. Hjarta borgarinnar er að finna við gamla markaðstorgið. Þar er gott að tylla sér niður á kaffihúsi og fylgjast með mannlífinu umkringd- ur miðaldaarkitektúr á alla kanta. FJÓRAR GÓÐAR HAUSTFERÐIR Þegar sólin tekur að lækka á lofti má treysta því hvar sem er í Evrópu að menn- ingarlífi ð lifni við. Hér eru fjórar borgir sem tilvalið er að heimsækja. Forn fegurð Það er gaman að vera í Wiesbaden, hvort sem er fyrir börn eða fullorðna. Sevilla Iðandi mannlíf er meðal þess sem dregur ferðalanga að borginni. MYND/AFP Spennandi borg Það er nóg um að vera í Varsjá, bæði að degi til og eftir að kvölda tekur. MYND/AFP ıwww.itr.is sími 411 5000 Góð hreyfing er lykillinn að góðri heilsu
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.