Fréttablaðið - 12.09.2009, Side 62
10 FERÐALÖG
Blaðberinn
bíður þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
U
m áramótin býður ferða-
skrifstofan Úrval-Útsýn
upp á einstaka ferð til
Taílands með beinu
flugi en það er í fyrsta sinn sem
það hefur verið gert. Flogið verð-
ur með þægilegri Boeing 757-flug-
vél og á leiðinni verður aðeins eitt
stutt stopp til að taka eldsneyti.
Aðeins fimm stjörnu hótel hafa
orðið fyrir valinu og fararstjórn
er í höndum Viktors Sveinssonar
sem hefur verið búsettur í Asíu
árum saman. Ferðin er einstakt
tækifæri til að upplifa taílenska
menningu og matargerð, til að
njóta fjölmargra spa- og jógastaða,
glæsilegra golfvalla, auk þess sem
færi gefst til að fara í skoðunar-
ferðir með íslenskri leiðsögn innan
Taílands og utan. Lagt verður af
stað 28. desember og snúið aftur
til Íslands 10. janúar. Fyrstu þrjá
dagana verður dvalið í Bangkok
þar sem boðið verður upp á ein-
staka kvöldferð um þessa marg-
slungnu borg þar sem lítt þekkt
hverfi verða könnuð og leyndar-
dómar opinberaðir. Einnig verða
sígildar ferðir um Kínahverfið, í
Konungshöllina og Pho-hofið.
Sjarmi strandbæjarins Hua Hin
Hinn 1. janúar verður ekið til
strandbæjarins Hua Hin suður af
Bangkok í rétt um tveggja klukku-
stunda akstursfjarlægð. Hua Hin
er elsti og fágaðasti strandstaður
Taílands og má það hugsanlega
þakka því að Bhumibol konung-
ur býr þar og hefur konungsfjöl-
skyldan lengi bundist þessum
kyrrláta en þó ævintýralega bæ
sterkum böndum. Margar ástæð-
ur eru fyrir því að Hua Hin er frá-
brugðinn öðrum strandbæjum Taí-
lands. Fyrst mætti nefna að þetta
er elsti og grónasti ferðamanna-
staður landsins sem byggðist upp
á fyrri hluta síðustu aldar af betri
borgurum Bangkok sem sóttu í
fagra friðsæld og þægilegt loftslag
Hua Hin sem á þeim tíma var lítt
þekkt þorp fiskimanna og anan-
asbænda. Staðurinn var eiginlega
uppgötvaður af Naris prins sem
byggði sér litla höll sem enn er til
og nefnist Saen Samran. Bróðir
hans, Vajiravudh (Rama VI) kon-
ungur, fylgdi í kjölfarið og fljót-
lega hafði hirðin sett niður bunga-
ló og hallir meðfram ströndinni og
standa mörg þessara húsa enn og
eru notuð af fjölmennri konungs-
fjölskyldunni. Bhumibol, núver-
andi konungur Taílands, býr orðið
alfarið í einni af strandhöllunum
sem nefnist Klai Kang Won, sem
útleggst „Áhyggjurnar óra fjarri“
á íslensku. Þrátt fyrir að ferðafólk
sæki mikið til Hua Hin og ferða-
þjónusta sé áberandi hefur Hua
Hin haldið öllum einkennum þess
að vera sannlega taílenskur stað-
ur. Þetta er enn ein ástæðan fyrir
sérstöðu bæjarins. Þessu má sjálf-
sagt þakka að uppbygging ferða-
þjónustu og aðlögun samfélags-
ins hefur verið jöfn og stígandi í
tæpa öld. Enginn kippir sér upp
við ferðamenn og alls staðar er
fólk velkomið. Bæjarlífið er rólegt
og það þarf ekki að fara langt frá
Petchakasem-götunni, sem er
umferðaræð staðarins, til að rek-
ast á búpening á rápi, heyra hana-
gal og sjá fólk að veiðum í síkjum,
vötnum eða sjónum.
Ljúffengur matur og spennandi
skoðunarferðir
Hua Hin er ljúfur og þægilegur
bær sem býður upp á fjölbreytta
þjónustu og afþreyingu. Hesta-
leigur eru á ströndinni, báta-
leigur, skútusiglingar, fjölbreytt
úrval veitingastaða og verslana.
Smokkfiskurinn þykir ljúffengari
í Hua Hin en annars staðar í Taí-
landi, hvort heldur grillaður með
hvítlauk eða karrílagaður að taí-
lenskum sið. Risarækjur í tom-
jam súpu, rauðflesk af götugrilli,
ferskar ostrur, gufusoðin krabbak-
ló eða heilsteiktur flatfiskur. Allt
er þetta hvort öðru ljúffengara og
sagt er að taílenski maturinn sé
betri í Hua Hin en öðrum ferða-
mannastöðum vegna fjölda inn-
lendra ferðamanna sem koma til
Hua Hin. Taílendingar lifa fyrir
mat, ræða mat öllum stundum og
eru vart búnir að kyngja síðasta
munnbita þegar þeir hafa lagt á
ráðin með næstu máltíð. Frá Hua
Hin verður boðið upp á bæði lang-
ar og stuttar skemmti- og skoðun-
arferðir meðal annars að Brúnni
yfir Kwai, í hina sögufrægu borg
Petchaburi, kajakaferð um fenja-
svæði Sam Roi Yod og að hinum
fljótandi bátamarkaði svo eitthvað
sé nefnt. Daglega verður boðið upp
á sérstakar ferðir og allar ferðirn-
ar eru leiddar af íslenskum far-
arstjórum. Lengsta ferðin sem
boðið verður upp á er til Angkor
í Kambódíu þar sem hinar fornu
borgarrústir verða skoðaðar. Frið-
rik Erlingsson rithöfundur verður
sérstakur leiðangursstjóri þeirrar
ferðar en hinn horfni menningar-
heimur khmera og mikilfengleiki
veldis Angkor hafa lengi verið
honum hugleikið rannsóknarefni.
LEYNDARDÓMAR TAÍLANDS
Úrval-Útsýn bjóða í fyrsta skipti upp á ævintýralega áramótaferð með beinu fl ugi til Bangkok.
Heimur út af fyrir sig Hvergi í Asíu má finna eins fjölbreytta og góða afþreyingu eða ævintýri eins og í Taílandi. Þar geta allir fundið eitthvað
við sitt hæfi, hvort sem það er Bangkok með sína mögnuðu vídd í næturlífi, mat, drykk og verslun eða við trópíska strönd Hua Hin yfir grill-
uðum humri og undir blaktandi kókospálma.
Fílaferð Ferðamönnum gefst meðal annars
kostur á að ferðast á hinum vinalega asíska
fíl.
Musteri Í Taílandi er hægt að skoða mörg
forn hof og sögufræga staði.
Göngu á Apafjallið
Khao Takiap á milli
mustera og helgi-
reita.
Nokkrum kvöldum á nætur-
markaðnum í algleymi yfir
sjóræningjavörum, handverki og
ljúffengum mat.
Morgunstund á votmarkaðn-
um Chat Chai sem er einsog
sædýrasafn í húsdýragarði.
Síðdegistei á „The Museum“
á gamla Railway-hótelinu með
glansandi stift og stífan kraga.
Síðdegisferð og vínsmökkun á
vínekrum Hua Hin.
Að leggja góðum málstað lið
með heimsókn í fílaflóttabúðirnar
Hutsadin.
Að fleyta kajak í þjóðgarðinum
Sam Roi Yot.
Að dilla sér langa og heita nótt við
taílenska sveitatóna á karaókí bar.
Því að læra handtökin við taí-
lenska matargerð og taílenskt
nudd.
Að sveifla kylfu á einhverjum af
fjölmörgum golfvöllum Hua Hin.
Að kynnast fágaðri bygginga-
list Taílands með heimsókn í
Mareukatayawan, sumarhöll
konungs Síams.
Að eiga rólega stund í fiskibæn-
um Pak Nam Pran og fylgjast
með veiðimönnum og iðju þeirra.
Að upplifa fjölbreytileika nátt-
unnar og fegurðar við fossinn
Pa-La-U.
EKKI
MISSA AF
ÞESSU