Fréttablaðið - 12.09.2009, Qupperneq 70
38 12. september 2009 LAUGARDAGUR
timamot@frettabladid.is
Íslenskar hafnir og hafnargerð nefn-
ist nýútkomin bók sem Siglingastofn-
un gefur út en skrifuð er af Kristj-
áni Sveinssyni sagnfræðingi. Þar er
mikinn fróðleik að finna á aðgengi-
legu máli, myndum og kortum. Förum
með Sigurði í smá hugarsiglingu um
söguna.
„Hafnirnar gegndu gríðarlega mik-
ilvægu hlutverki sem samgöngumann-
virki alveg fram á síðustu áratugi 20.
aldar, bæði vegna vöru- og fólksflutn-
inga. Þær voru lífæðar sem tilvera
þéttbýlisstaðanna valt á. Fólk þurfti
að fá varning sjóleiðina og koma frá
sér fiskafurðum, fyrir utan að leggja
upp afla. Víða á landinu var búið að
byggja sæmilegar bryggjur sem
bátar og skip gátu athafnað sig við
áður en tókst að byggja varnargarða
sem skýldu höfnunum nægilega vel
þannig að þær teldust öruggar. Það
var ekki fyrr en á síðasta fjórðungi
20. aldar sem skriður komst á það.
Margir muna fréttir af bátum sem
urðu fyrir skemmdum vegna sjávar-
gangs við bryggjur landsins. Það var
að gerast alveg fram yfir 1980.“
Kristján kveðst hafa komið inn á
flestar hafnir landsins þegar hann
hafi verið í sjómælingum „í gamla
daga“ en nýju bókina hafi hann unnið
mikið upp úr skjölum Siglingastofn-
unar, teikningum og ljósmyndum sem
nái aftur til byrjunar síðustu aldar.
„Allt aftur í embætti landsverkfræð-
ings, síðar Vita- og hafnamálastofnun-
ar og nú síðast Siglingastofnunar. Það
eru þær stofnanir sem hafa annast
hafnargerð á Íslandi. Svo hef ég nátt-
úrlega skoðað skjöl í Þjóðskjalasafni
og víðar,“ lýsir hann og segir ekki síst
forvitnilegt að lesa um upphaf hafn-
argerðar á Íslandi. „Hér voru geysi-
lega dugmiklir hafnargerðarmenn
fyrr á árum sem beittu ótrúlegri út-
sjónarsemi við að byggja hafnir við
erfið skilyrði. Svo er gaman að sjá
þróunina sem verður þegar véltækn-
in og þekkingin eykst, dýpkunarskip
koma til sögunnar, auknar rannsóknir
og líkanstöð.“
Reykjavíkurhöfn var fyrsta raun-
verulega höfnin sem byggð var á Ís-
landi að sögn Kristjáns, gerð á árun-
um 1913 til 1917. „Hún var gríðarlega
mikið stórvirki, eiginlega Kára-
hnjúkavirkjun þess tíma og hennar
sér enn stað í Eyjagarðinum að vestan
og Ingólfsgarðinum að austan. Vegna
byggingar hennar voru flutt inn vél-
knúin tæki sem voru ekki til í þessu
landi áður.“
Náttúrulegar aðstæður hafa ráðið
miklu um hvar hafnargerð reyndist
erfið og hvar ekki. „Sums staðar eru
aðstæður góðar eins og til dæmis á
Akureyri, svo eru aðrir staðir sem
liggja fyrir opnu hafi svo sem í Þor-
lákshöfn, þar er höfnin algerlega
manngerð,“ segir Kristján og nefnir
líka Vestmannaeyjahöfn sem lengi
var erfið viðfangs en gosið 1973 varð
til að bæta verulega.
Hafnirnar eru gríðarlega grjót-
frek mannvirki en Kristján segir
þær samt langt frá að vera einhverj-
ar steinahrúgur. „Það eru mikil fræði
kringum það að velja grjót í hafnir og
vinna það rétt. Því er raðað upp eftir
ákveðnum reglum og heilmikil bygg-
ingarvísindi eru bak við það,“ tekur
hann fram. En telur hann hafnirn-
ar illa nýttar fjárfestingar nú þegar
mestallir flutningar eru komnir á
þjóðvegina?
„Það er þróun sem hefur átt sér
stað á síðasta hálfum öðrum áratug
að landflutningar hafa tekið mikið
yfir. Hafnirnar eru samt enn mikil-
vægar fyrir flutningakerfi landsins.
Þær gegna hlutverki í olíuflutningum
og fiskafurðir, mjöl og lýsi eru fluttar
út frá mörgum þeirra. Svo hafa þær
þýðingu fyrir skemmtiferðaskipin að
ekki sé talað um fiskiskipaflotann.“
gun@frettabladid.is
KRISTJÁN SVEINSSON SAGNFRÆÐINGUR: RITAÐI BÓK UM ÍSLENSKAR HAFNIR
Lífæðar staða víða um landið
SAGNFRÆÐINGURINN „Hér voru geysilega dugmiklir hafnargerðarmenn fyrr á árum sem beittu
ótrúlegri útsjónarsemi við að byggja hafnir við erfið skilyrði.“ FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FREYMÓÐUR JÓHANNESSON
TÓNSKÁLD OG LISTMÁLARI VAR
FÆDDUR ÞENNAN DAG ÁRIÐ
1895.
„Er óskir rætast bætist böl
og stríð.“
Freymóður var tónskáld og
listmálari og einn af for-
sprökkum danslagakeppni
SKT. Sem laga-og textahöf-
undur er hann þekktur undir
dulnefninu Tólfti september.
MERKISATBURÐIR
1609 Henry Hudson kemur að
ósum Hudson-fljóts.
1905 Ráðhús Kaupmannahafn-
ar er formlega vígt.
1909 Sjúkrasamlag Reykjavíkur
er stofnað að frumkvæði
Oddfellow-reglunnar.
1940 Hellamálverkin í Lascaux í
Frakklandi eru uppgötvuð.
Þau eru talin vera 16.000
ára gömul.
1949 Mesti hiti á Íslandi í sept-
ember mælist 26° C á
Dalatanga við Mjóafjörð.
1962 Ben Gurion, forsætis-
ráðherra Ísraels, kemur í
opinbera heimsókn til Ís-
lands.
1980 Herforingjastjórn rænir
völdum í Tyrklandi.
1985 Íslandsmet er sett í fall-
hlífarstökki.
Kristnihald undir
jökli eftir Halldór
Kiljan Laxness var
frumsýnt þennan
dag árið 1970, í leik-
gerð leikhússtjór-
ans Sveins Einars-
sonar sem einnig
stýrði uppfærslunni.
Reyndar hafði verk-
ið verið frumflutt á
listahátíð í Reykjavík
um vorið en þetta
var hin formlega
frumsýning. Kristni-
haldið fékk misjafna
dóma í blöðunum.
Af einum gagnrýnanda var það talið eitt af eft-
irminnilegustu nývirkjum í íslenskri leiklist um
langt skeið en öðrum
var ráðgáta af hverju
það hefði verið valið
til sviðshæfingar og
flutnings. Af almenn-
um leikhúsgestum var
því þó feikivel tekið
og var sýnt 94 sinnum
á fyrsta leikári en 178
sinnum í allt.
Í helstu hlutverk-
um voru Gísli Hall-
dórsson sem Jón
prímus, Þorsteinn
Gunnarsson sem
Umbi, Helga Bach-
mann sem Úa og
Regína Þórðardóttir sem Hnallþóra. Fjölmargir
fleiri komu við sögu.
ÞETTA GERÐIST: 12. SEPTEMBER 1970
Kristnihaldið frumsýnt í Iðnó
UMBI OG JÓN PRÍMUS Þorsteinn Gunnarsson og Gísli
Halldórsson.
AFMÆLI
ÞÓRUNN
ERNA
CLAUSEN
leikkona
er þrjátíu
og fjögurra
ára.
INGA BJÖRK
SÓLNES
framleið-
andi er
fjörutíu og
sjö ára.
JÓN KARL
ÓLAFSSON
fram-
kvæmda-
stjóri er
fimmtíu og
eins árs.
JÓN HÁKON
MAGNÚS-
SON fram-
kvæmda-
stjóri er
sextíu og
átta ára.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Útfararþjónusta
Davíðs Ósvaldssonar ehf.
Davíð Ósvaldsson
Útfararstjóri
S. 896 6988 / 553 6699
Óli Pétur Friðþjófsson
Útfararstjóri
S. 892 8947 / 565 6511
MOSAIK
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Ævar þór Hjaltason
Ársölum 3,
lést laugardaginn 5. september. Útför hans fer fram frá
Digraneskirkju mánudaginn 14. september kl. 13.00.
Hrefna Einarsdóttir
Hjalti Ævarsson Sigríður Sigurðardóttir
Trausti Þór Ævarsson Ástríður Torfadóttir
Svanþór Ævarsson Ásgerður Hákonardóttir
Auður Ævarsdóttir Sigurður Viðarson
og barnabörn.
Edda Björk Þórsdóttir mun
á morgun, 15. september,
kynna doktorsverkefni sitt
sem hún hefur unnið í lýð-
heilsuvísindum, en verkefn-
ið fjallar um líðan og heilsu-
farsleg eftirköst sem eftirlif-
endur snjóflóðanna á Flateyri
og Súðavík árið 1995 hafa
mátt þola.
Fyrirlesturinn ber heitið
Langtíma áfallastreituröskun
þolenda snjóflóðanna í Súða-
vík og á Flateyri árið 1995 og
aðrar heilsufarslegar afleið-
ingar þeirra. Fyrirlesturinn
hefst klukkan 12.00 í Stapa
í Háskólanum en rannsókn-
in var styrkt af Rannsóknar-
sjóði Háskóla Íslands.
Rætt um snjóflóð
SNJÓFLÓÐIN 1995 Edda Björk
Þórsdóttir vann doktorsverkefni
um líðan þolenda.