Fréttablaðið - 12.09.2009, Síða 74
42 12. september 2009 LAUGARDAGUR
menning@frettabladid.is
Um helgina
Tilnefndar kvikmyndir frá öllum
Norðurlöndunum verða sýndar í
Háskólabíói um helgina. Einstakt
tækifæri til að sjá hvað er að ger-
ast best í norrænni kvikmynda-
gerð.
> Ekki missa af
beinni útsendingu frá tón-
leikum í Þýskalandi þar sem
sinfóníur Beethovens verða
fluttar. Kringlubíó kl. 18.
Grænlenski kórinn Erinnap Nipaa er kominn til
landsins og heldur hér þrenna opna tónleika.
Á morgun verður sungið í Seltjarnarneskirkju
og hefjast tónleikarnir klukkan 20. Á mánudag
verða tónleikar í Norræna húsinu klukkan 20
og á þriðjudag kemur kórinn fram í Tónlistar-
húsinu á Akranesi klukkan 15. Alls staðar er
ókeypis inn.
Sungnir verða grænlenskir söngvar og klæð-
ast kórfélagar sínum litskrúðuga grænlenska
þjóðbúningi. Ekki verður þó eingöngu sungið
heldur er 73 ára gamall trommudansari með í
för sem mun leika listir sínar.
Einnap Nipaa er frá bænum Qaqortoq á
Suður-Grænlandi þar sem á fjórða þúsund
manns býr. Qaqortoq, sem þýðir hið hvíta, er
vinabær Akraness.
Heimsókn kórsins til Íslands er liður í að
styrkja menningartengsl landanna í kjölfar
aukins sjálfstæðis Grænlands. - bþs
Grænlenskur kór í Íslandsheimsókn
FRÁ QAQORTOQ Merking nafnsins er hið hvíta.
Danskt heiti bæjarins er Julianehåb.
FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN HÁKON
Verk Eyborgar Guðmundsdóttur
(1924-1977) eru í fyrirrúmi og nánast
tilefni sýningarinnar Blik, sem er
þýðing á hinu alþjóðlega heiti OP, sem
verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur
– Kjarvalsstöðum í dag.
Þar er varpað ljósi á op–listina og þau áhrif sem
hún hefur haft á íslenska listamenn frá miðjum
sjöunda áratug síðustu aldar til dagsins í dag.
Fjölmargir listamenn hafa skírskotað til op-
listarinnar í verkum sínum en á sýningunni eru
sýnd verk eftir átta íslenska listamenn sem á
einn eða annan máta beita sjónhverfingum eða
leika sér með upplifun áhorfandans í verkum
sínum. Op-listin á rætur að rekja til miðrar síð-
ustu aldar, en orðið op er dregið úr optical sem
þýðir blik. Í op-listinni er áhersla lögð á sam-
band áhorfandans og listaverksins og gerð er
tilraun til að breyta skynjun áhorfandans með
framsetningu lita, forma og ljóss. Verkið mynd-
ar þannig hreyfingu út frá ólíku sjónarhorni
áhorfandans.
Sýningin hverfist um myndlistarkonuna
Eyborgu Guðmundsdóttur, sem lítið hefur borið
á í íslensku listalífi en er kunn í þröngum hópum
þeirra sem skoðað hafa hvernig alþjóðlegar
bylgjur bárust hingað. Eyborg aðhylltist geó-
metríska abstraksjón en margir gætu kannast
við glerverk hennar í glugga Mokka, sem hefur
hangið á sama stað í rúma fjóra áratugi, eða frá
því að Eyborg hélt þar sýningu árið 1966.
Hún nam myndlist í París og sýndi víða um
Evrópu í hópi áhrifamikilla listamanna sem
kölluðust Group Mesure. Hún hélt sína fyrstu
einkasýningu í Bogasal Þjóðminjasafnsins árið
1965, en síðasta sýning hennar var tíu árum síðar
í Norræna húsinu. Hún er ótvírætt sá íslenskur
listamaður sem gekk lengst fram í að tileinka
sér hugmyndir og tækni op-listarinnar.
Þetta er fyrsta sinn sem verk hennar og lífstarf
eru sett í innlent samhengi, þótt stök verk hennar
hafi ratað í samsýningar. Raunar gegnir furðu að
framlag hennar til íslenskrar myndlistar skuli
ekki hafa fengið meiri athygli.
Auk verka Eyborgar eru sýnd ný og eldri verk
Arnars Herbertssonar, verk Jóns Gunnars Árna-
sonar, Gravity sem hann sýndi á Feneyjatvíær-
ingnum árið 1982, Colour Spectrum og teikning-
ar eftir Ólaf Elíasson og ný og eldri verk Helga
Þorgils Friðjónssonar. Einnig eru til sýnis verk
eftir Hrein Friðfinnsson, Hörð Ágústsson og
pop-op verk eftir JBK Ransu.
Sýningarstjóri er Helgi Már Kristinsson, en
hann verður með leiðsögn um sýninguna sunnu-
daginn 13. september kl. 15.
Bliksmiðja verður opnuð í norðursal á sama
tíma en um er að ræða fjölskylduvæna og fræð-
andi listsmiðju. Þar er hægt að spreyta sig á
skemmtilegum verkefnum, sem tengjast blik-
list, sjónblekkingum og vísindum. Hópar eru
velkomnir en þurfa að bóka tíma hjá safninu.
pbb@frettablaðið.is
EYBORG OG OP-LIST Á ÍSLANDI
MYNDLIST Eyborg Guðmundsdóttir listmálari. Myndin
var tekin 1959 af Andrési Kolbeinssyni ljósmyndara.
MYND/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR
Þrá og ástríða
Í gær fór fram doktorsvörn við
íslensku- og menningardeild
hugvísindasviðs við Háskóla
Íslands í Hátíðarsal. Fern Nev-
jinsky varði þá ritgerð sem hún
nefnir: Désir et passion dans
l’œuvre
dramatique
de Jóhann
Sigurjóns-
son, eða Þrá
og ástríða
í leikverk-
um Jóhanns
Sigurjóns-
sonar.
Doktors-
ritgerð
þessi var
lögð fram samtímis við Háskóla
Íslands og Université Paris IV-
Sorbonne samkvæmt samstarfs-
samningi skólanna frá 2003.
Hún er rituð á frönsku en henni
fylgir ítarlegt ágrip á íslensku.
Leiðbeinendur voru prófessor
Torfi H. Tulinius og prófessor
Marc Auchet.
Höfundur var um árabil dós-
ent í sálarfræði við háskólann
í Rúðuborg, auk þess sem hún
starfaði sem sálgreinir um ára-
tuga skeið. Á miðjum aldri hóf
hún nám í norrænum bókmennt-
um við Sorbonne og er ritgerð
þessi lokaáfangi á þeirri leið.
Hún nýtir sér umtalsverða sér-
þekkingu sína á sálgreiningu
til að nálgast leikrit Jóhanns
Sigurjónssonar á nýstárlegan
hátt.
Ritgerðin skiptist í átta kafla
auk inngangs þar sem greint er
frá tilgangi höfundar og aðferð-
um hans lýst, og lokakafla þar
sem helstu niðurstöður hans
eru dregnar saman. Um er að
ræða ítarlega greiningu á leik-
verkum Jóhanns með aðferðum
sálgreiningar.
Megintilgáta doktorsefnisins
er sú að þrár persóna Jóhanns
Sigurjónssonar leiðir þær út í
ástríður, sem opna leiðina fyrir
andlegu hruni þeirra með alls-
herjar afturhvarfi til frumstiga
sálarlífsins.
Með aðferðum bókmennta-
fræðinnar, en einnig með skír-
skotun til skrifa Sigmunds
Freud, Jacques Lacan og fjölda
annarra höfunda úr röðum
sálgreinenda, er farið í gegn-
um öll leikrit Jóhanns. Athygl-
inni er einkum beint að þróun
persónanna í leikverkunum.
Í lokakafla er kastljósinu
beint að frægustu leikpersónu
Jóhanns, Galdra-Lofti. Doktors-
efnið greinir ofan í kjölinn sam-
band Lofts við föður sinn, vin,
biskupinn og ástkonurnar tvær,
og hvernig þessi tilfinninga-
sambönd tengjast þrá hans eftir
þekkingu. Fyrir henni er Loft-
ur eins konar Don Juan þekk-
ingarinnar. Þessi þrá breytist í
ástríðu sem ýtir honum fram af
ystu nöf og hann dregur veikl-
aðar sálir með sér í fallinu.
Vörnin fór að mestu leyti
fram á íslensku. Doktorsefn-
ið sjálft talar íslensku og form
varnarinnar miðaðist bæði við
hérlendar hefðir og franskar.
Andmælendur, auk leiðbein-
enda, voru þeir dr. Camille
Dumoulié, prófessor við Univer-
sité Paris XIII – Nanterre og dr.
Sveinn Yngvi Egilsson, prófess-
or við Háskóla Íslands. Heiðurs-
andmælandi var dr. Sveinn Ein-
arsson leikhúsfræðingur.
Með ritgerðinni bætist enn
við rit sem greina höfundar-
verk Jóhanns, ævisögu Helge
Thorberg og rannsóknar-
verk Jóns Viðars Jónassonar,
Kaktusblómið og nóttin.
- pbb
FERN NEVJINSKY
Tónlistar- og ráðstefnuhúsið við
Reykjavíkurhöfn mun taka til
starfa í maí árið 2011. Ákvörðun
um nafn á húsið verður tekin ekki
síðar en í nóvember næstkomandi.
Þetta kom fram í erindi sem Pétur
J. Eiríksson, stjórnarformaður
Portus Group, hélt á ráðstefnu
Samtaka ferðaþjónustunnar um
mikilvægi fundamarkaðarins, sem
nú stendur yfir á Hilton Nordica.
Á ráðstefnunni kom fram að
með tilkomu þess muni markað-
urinn fyrir fundi og ráðstefnur
stækka verulega.Hlutur Íslands
í alþjóðlega fundamarkaðnum er
aðeins 0,3 prósent.
- pbb
Tónlistarhús-
ið opnað 2011
MENNING Það verður mikið um dýrðir á
Austurbakkanum í maí 2011.
Hver var
Frida Kahlo?
Litrík og stormasöm ævi Fridu Kahlo sem hneykslaði heiminn
með taumlausu líferni sínu og stórbrotinni myndlist.
Snilldarlega skrifuð söguleg skáldsaga um áhrifamikinn
listamann og einstaka konu. Fáanleg í kilju.
„Ég get lesið þessa bók
aftur og aftur ...“
Jenný Anna Baldursdóttir / jenfo.blog.is