Fréttablaðið - 12.09.2009, Page 76
44 12. september 2009 LAUGARDAGUR
Kvikmyndasafn Íslands sýnir í dag
kl. 16 kvikmynd Óskars Gíslasonar:
Björgunarafrekið við Látrabjarg.
Hinn 9. apríl sl. voru liðin 60 ár frá
frumsýningu heimildarmyndar
Óskars Gíslasonar, ljósmyndara og
kvikmyndagerðarmanns, sem segir
frá frækilegri björgun heimamanna
á Látrum og nágrenni, á breskum
skipbrotsmönnum af togaranum
Dhoon, 12. desember 1947.
Sjaldan hefur verið unnið annað
eins björgunarafrek og þarna er
lýst og ekki má vanmeta afrek
kvikmyndagerðarmannsins sem
kom því á filmu. Aðdragandinn að
myndgerðinni var sá að einn heima-
manna á Vestfjörðum hafði sam-
band við Óskar, eftir strand Dhoons
við Látrabjarg, og stakk upp á því að
björgunarafrekið yrði sett á svið og
kvikmyndað.
Það var svo ári síðar, í lok nóv-
ember, að sviðssetningin fór fram í
Kollsvík vestra. Meðan tökur stóðu
yfir bárust boð um að raunverulegt
strand hefði orðið undir Hafnarmúla
í Örlygshöfn. Þar hafði strandað, í
aftakaveðri, breski togarinn Sargon.
Tóku menn upp tæki sín og hröð-
uðu sér til Patreksfjarðar þar sem
þeim tókst að bjarga sex mönnum
af áhöfn togarans en ellefu fórust.
Munu þeir sem létust hafa króknað
úr kulda.
Þannig bar það til að kvikmynd
Óskars varð jafn raunveruleg og
raun ber vitni því ekki var um svið-
setningar að ræða á þeim atriðum
sem sýna sjálfa björgunina.
Myndin er nú sýnd í tengslum við
sýningu í Hafnarborg sem helguð er
hafinu. Með myndinni er sýnt gam-
alt viðtal Erlends Sveinssonar við
stjórnandann, Óskar Gíslason. Sýn-
ingar eru í Bæjarbíói, Strandgötu 6,
Hafnarfirði. Húsið verður opnað ca
hálftíma fyrir sýningu. - pbb
Björgunarafrekið við
Látrabjarg sýnt
KVIKMYNDIR Óskar Gíslason kvik-
myndagerðarmaður vann afrek er hann
festi strand og björgun á filmu 1949.
Í dag verður verður ljós-
myndasýningin Óþekkt
augnablik opnuð í Þjóð-
minjasafni Íslands. Sýning-
in er greiningarsýning á
ljósmyndum frá tímabilinu
1900-1960 úr Ljósmynda-
safni Íslands í Þjóðminja-
safni. Leitað er aðstoðar
safngesta við greiningu
myndefnis. Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem Ljósmynda-
safnið leitar til almennings
eftir hjálp við greiningu á
óþekktum minnum í hinu
mikla safni ljósmynda sem
þar er geymt. Hafa á fyrri
leitarsýningum komið fram
mikilvægar upplýsingar um
myndefni, menn, staði og
tíma sem fest hafa verið á
mynd.
Í hundrað ár hefur Þjóðminja-
safn Íslands safnað ljósmyndum.
Söfnunin hefur haldist í hend-
ur við þróun ljósmyndunar. Ljós-
myndir eru samofnar lífi eigand-
ans, eins konar minningabanki
sem hann leitar í. Fólk lætur ljós-
myndir ekki af hendi fyrr en þær
missa gildi sitt. Þannig voru það
fyrst brúntóna harðspjaldamynd-
ir af uppstilltu fólki í sínu fínasta
pússi sem bárust safninu til varð-
veislu. Seinna bættust í sarpinn
myndir af bæjum til sveita, götum
þorpa, af fólki að störfum úti og
inni og íslensku landslagi með
sínum fossum og fjöllum. Eftir að
atvinnumenn hættu að sitja einir
að myndatökum og fólk fór sjálft
að skapa sér eigin myndasöfn
fóru litlar skyndimyndir að ber-
ast. Vinafólkið á ferðalagi, nesti
snætt í laut, daglegt líf fjölskyld-
unnar heima og heiman. Það líður
langt frá myndatökunni og þar til
mynd verður að safngrip og því er
enn lítið af litmyndum í safninu og
enn lengra í land þar til símamynd-
ir samtímans munu berast ef þær
hverfa ekki bara við endurnýjun
farsímans.
Stærsti hluti myndasafnanna eru
samt ekki pappírsmyndir heldur
glerplötur og filmur frá atvinnu-
og áhugamönnum. Á þessari sýn-
ingu er brugðið upp myndum úr sex
slíkum filmusöfnum. Þeim er ætlað
að sýna þverskurð af viðfangsefn-
um ljósmyndaranna og sýna þróun
íslensks samfélags á þeirri rúmu
hálfu öld sem þær spanna. Jafn-
framt eru þær gestaþraut þar sem
leitað er í smiðju safngesta um
þekkingu á því sem myndirnar
sýna. Hvar eru myndirnar teknar?
Hvaða fólk er á þeim?
Í tengslum við sýninguna verður
opnað sérstakt vefsvæði á heima-
síðu Þjóðminjasafnsins. Þar verður
hægt að skoða myndirnar og geta
gestir skráð athugasemdir við þær
ef þeir þekkja til fólks eða staða
á myndunum. Farið verður síðan
yfir upplýsingarnar og þær skráð-
ar í gagnagrunn safnsins. Upplýs-
ingar sem safnast með þessum
hætti eru safninu einkar mikil-
vægar því þær setja nafnlausar
myndir í nýtt samhengi og segja
sögur sem annars hefðu fallið í
gleymskunnar dá. - pbb
Óþekkt augnablik loks skilin
LJÓSMYNDIR Ein þeirra mynda sem menn kunna ekki skil á en almenningur er
hvattur til að greina.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Laugardagur 12. september 2009
➜ Tónleikar
22.00 Bravó bítlarnir verða á Græna
Hattinum við Hafnarstræti 96 á Akur-
eyri. Gestasöngvarar verða Ari Jónsson
og Brynleifur Hallsson. Húsið verður
opnað kl. 21.
22.00 Sólstafir og XIII verða með tón-
leika á Sódómu Reykjavík við Tryggva-
götu.
➜ Opnanir
14.00 Sigurlín M. Grétarsdóttir opnar
sýninguna „Tilbrigði/Variations“ í
Safnahúsinu á Húsavík við Stóragarð 17.
Opið virka dag kl. 10-17.
16.00 Á Kjarvalsstöðum við Flóka-
götu, opnar sýningin „Blik“ þar sem
sýnd verða verk átta íslenskra lista-
manna í anda Op-listastefnunar. Opið
alla daga kl.10-17.
18.00 Á 1. hæð í Kringlunni
opna Flikkrurnar ljós-
myndasýninguna „Kven-
leiki og Karlmennska“
þar sem sýndar verða
myndir eftir 56
konur. Sýningin
verður opin á
opnunartíma
verslana.
➜ Sirkus
15.00 Sirkus Baldoni verður með
sýningu í Íþróttahúsi Sauðárkróks við
Skagfirðingabraut.
➜ Sýningar
Jón Adolf Steinólfsson hefur opnað
sýningu á Gallerý listatorgi við Vitatorg
í Sandgerði. Sýningin er opin daglega
kl. 13-17.
Elsa Björg Magnúsdóttir hefur opnað
ljósmyndasýningu í Mokkakaffi við
Skólavörðustíg 3a. Opið daglega kl. 9-
18.30.
➜ Síðustu Forvöð
Ástralski listamaðurinn Michael Galovic
hefur sett upp sýningu á íkonamyndum
í Háteigskirkju við Háteigsveg. Sýningin
er opin milli kl. 12-18 og henni lýkur á
sunnudag.
➜ Kvikmyndir
Kvikmyndaklúbburinn Græna ljósið
sýnir allar fimm myndirnar sem hafa
hlotið tilnefningu til Kvikmyndaverð-
launa Norðurlandaráðs í ár. Dagskrá og
miðasala á midi.is.
Samtök hernaðarandstæðinga og
Vantrú efna til sýningar á heimildar-
myndinni „Mótmælandi Íslands“ eftir
Þóru Fjeldsted og Jón Karl Helgason.
Sýningin fer fram í Friðarhúsi við Njáls-
götu 87 kl. 15 og aðgangur er ókeypis.
➜ Dansleikir
Geirmundur Valtýsson og hljómsveit
verða á Kringlukránni, Kringlunni 4-12.
Kamui verða á Nasa við Austurvöll.
Trukkakvöld Dóra Tjakks fer fram á
Skemmtistaðnum Spot við Bæjarlind 6
á Kópavogi. Sixties spila fyrir dansi.
Hljómsveitin MONO verður á Útlagan-
um á Flúðum.
Sunnudagur 13. september 2009
➜ Tónleikar
17.00 Friðrik Vignir Stefánsson org-
anisti heldur tónleika í Hjallakirkju við
Álfaheiði í Kópavogi þar sem á efnis-
skránni verða verk eftir meðal annars
Fanny og Felix Mendelssohn, Bach og
Händel. Aðgangur er ókeypis.
20.00 Baggalútur verður með tónleika
í Salnum við Hamraborg í Kópavogi.
➜ Sirkus
15.00 Sirkus Baldoni verður með sýn-
ingu í KA-húsinu á Akureyri.
➜ Kvikmyndir
MÍR (Menningartengsl Íslands og Rúss-
lands) sýnir pólsku kvikmyndina „Kanal“
eftir Andrzej Wajda í MÍR-salnum að
Hverfisgötu 105 kl. 15. Enskur texti.
Aðgangur ókeypis.
➜ Dansleikir
Dansleikur Félags eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni verður að Stang-
arhyl 4 kl. 20-23. Danshljómsveitin
Klassík leikur danslög við allra hæfi.
➜ Dans
Í tilefni af 20 ára afmæli
Dansskóla Jóns Péturs
og Köru verður opið
hús í nýju kennslu-
húsnæði dansskólans
í Valsheimilinu að
Hlíðarenda milli kl. 15
og 17.
➜ Listamannaspjall
15.00 Valgerður Hauksdóttir verður
með leiðsögn um sýningu sína „Átt-
leysur“ í Listasafni ASÍ við Freyjugötu 41.
Sýningin er opin alla daga nema mánu-
daga kl. 13-17.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Í Gallerí Crymogæa stendur nú
yfir sýning listamannsins Styrm-
is Arnar Guðmundssonar á verk-
um úr nýútkominni bók hans,
Stafrófi glæpamanna. Bókin, sem
er lokaverkefni Styrmis Arnar úr
Gerrit Rietveld-listaháskólanum
í Amsterdam, inniheldur tuttugu
og sex teikningar og ljóð.
„Fyrirmyndin er barnabók
sem kennir stafrófið með mynd-
um. Mér fannst hugmyndin að
flokka glæpamenn niður eftir
stafrófi vera skemmtileg og á
sama tíma er ég að fanga hið ljóta
sem blundar í mannkyninu en
á saklausan og einfaldan hátt,“
segir Styrmir Örn sem sá sjálfur
um að fjármagna útgáfu bókar-
innar sem kemur út í sjö hundr-
uð og fimmtíu eintökum. Mynd-
irnar og ljóðin í bókinni fjalla um
brennuvarg, eiturlyfjasala og þjóf
og eru ljóðin eftir Baldvin Þór
Magnússon.
Aðspurður segir Styrmir Örn
bókaformið vera hentugt form
til að miðla myndlist og útilok-
ar ekki að hann muni nýta sér
þetta tiltekna form aftur í fram-
tíðinni. Hann vinnur nú að list
sinn í Amsterdam. „Ég hef alltaf
mjög gaman af því að koma heim
og sýna hér. En sem nýútskrifað-
ur myndlistamaður þá finnst mér
meira heillandi að vera á megin-
landinu þar sem tækifærin eru
fleiri en hér.“
Hægt er að nálgast eintak af
Stafrófi glæpamanna í Gallerí
Crymogæa. - sm
Bók um stafróf
glæpamanna
FÉKK HUGMYNDINA FRÁ BARNABÓK
Bókin er lokaverkefni Styrmis frá Gerrit
Rietveld-listaháskólanum í Amsterdam.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Verð kr. 265.000.-
Hrein fjárfesting ehf
Dalbraut 3 105 reykjavík • rainbow@rainbow.is
Sími verslun 567 7773 . kvöld og helgar 893 6337
www.rainbow.is
Rainbow
Bjóðum nokkrar Rainbow á 186,000
Eða gömul Rainbow upp í nýja tilboð 155,000
Eigum einnig notaðar yfi rfarnar rainbow
með ábyrgð verð 80.000 tilboð 58.000
meðan byrgðir endast.
Skraut- og
listmunaviðgerðir
Geri hluti eins og nýja
(úr hvaða efni sem er)
Jón Vilhjálmsson
Sími 690-8069
Geymið auglýsinguna