Fréttablaðið - 12.09.2009, Side 82
50 12. september 2009 LAUGARDAGUR
Hljómsveitin Nolo sem er
skipuð menntskælingunum
Ívari Björnssyni og Jóni
Baldri Lorange hefur vakið
mikla athygli á síðunni Gog-
oyoko.com að undanförnu.
Þeir félagar hafa átt mest spil-
uðu lögin á síðunni auk þess sem
tvær stuttplötur þeirra hafa fengið
góðar viðtökur. „Við byrjuðum að
gera fyrsta lagið okkar árið 2008.
Þetta byrjaði á því að ég fór í Góða
hirðinn og fann gamlan tveggja
hæða skemmtara og keypti hann,“
segir Ívar.
Þeir félagar voru áður í hljóm-
sveitinni Spooky Jetson sem tók
þátt í Músíktilraunum 2007 og í
Sidewalk. „Eftir marga tromm-
ara og bassaleikara enduðum við
tveir, hann á gítar og ég á hljóm-
borð og á bassanum. Við fórum að
semja stanslaust og ákváðum að
sleppa því að vinna í tvö sumur til
að reyna að semja meira.“
Nolo spilar epíska rólegheita-
tónlist sem rennur sérlega ljúft í
gegn. Áhrifavaldar þeirra félaga
eru af ýmsum toga. Ívar hlust-
ar á Marc Bolan og eitís-tónlist
en einnig pönk og klassískt rokk,
sem Jón er einnig hrifinn af ásamt
blúsrokki.
Ívar er afar þakklátur fyrir
tækifærið sem þeir hafa feng-
ið hjá Gogoyoko, sem nú er skráð
með hátt í 900 íslenska flytjendur.
„Þegar þetta var opnað fyrir
almenningi sendum við lögin inn
og upp úr öllum væntingum vorum
við nr. 1. Gogoyoko hefur hjálpað
okkur gríðarlega mikið að koma
okkur á framfæri.“
Nolo gefur á næstunni út litla
plötu hjá Braki, undirfyrirtæki
Kimi Records. Einnig spilar sveit-
in á tónleikaröðinni Réttir sem
verður haldin í Reykjavík síðar í
mánuðinum. Áframhaldandi laga-
smíðar og upptökur eru sömuleiðis
á döfinni.
„Við erum með svo ótrúlega
mörg lög sem við erum að taka
upp. Á hverri æfingu erum við að
semja eitt eða tvö lög,“ segir Ívar
og greinilegt að Nolo á framtíðina
fyrir sér. freyr@frettabladid.is
Semja í stað þess að vinna
NOLO Ívar Björnsson og Jón Baldur Lorange skipa hljómsveitina Nolo sem hefur vakið mikla athygli um þessar mundir.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Þetta var svo óeigingjarnt og fal-
lega gert að maður fékk nánast tár
í augun. Maður hefði haldið að peyj-
ar sem þessir mundu heldur vilja
eyða peningunum sínum í eitthvað
annað,“ segir Ólöf Jóhannsdóttir,
meðlimur Göngum saman-samtak-
anna um peningagjöf frá Lúkasi
Jarlssyni og Jóel Þóri Ómarssyni,
tólf ára drengjum í Vestmannaeyj-
um. Samtökin Göngum saman safn-
ar fé til grunnrannsókna á brjósta-
krabbameini.
Lúkas og Jarl færðu samtökun-
um peningagjöf að upphæð 30.000
krónur sem þeir höfðu safnað í um
ár með því að leika tónlist fyrir fólk
og gangandi.
Faðir Lúkasar, Jarl Sigurgeirs-
son, segir hugmyndina hafa alfar-
ið verið drengjanna og er að eigin
sögn mjög stoltur af syninum. „Þeir
ætluðu svo sem ekkert að fara að
safna pening heldur vildu bara
skapa smá jólastemningu síðustu
jól. Þegar fólk fór svo að gefa þeim
pening þá datt þeim í hug að það
væri sniðugt að styrkja gott mál-
efni. Þeir gripu svo tækifærið þegar
Göngum saman-gangan fór fram
hérna í Eyjum um síðustu helgi.
Það sem mér þótti svo gaman var
að það var enginn að halda þessu að
þeim, þeim datt þetta algjörlega í
hug sjálfum,“ segir Jarl.
Vinirnir, sem báðir leika á saxófón
með skólalúðrasveit Vestmannaeyja,
segjast vel geta hugsað sér að endur-
taka leikinn fyrir næstu jól. „Þetta
var mjög gaman, skemmtilegast var
samt að gefa peningana til Göngum
saman. Mér sýndist líka fólk hafa
gaman af tónlistinni,“ segir Lúkas
Jarlsson. Báðir drengirnir hyggjast
halda áfram tónlistarnáminu í fram-
tíðinni. „Okkur langar líka báðum
að verða kokkar þegar við verðum
stórir. Kannski opnum við saman
veitingastað þar sem annar okkar
spilar fyrir gestina á meðan hinn
eldar,“ segja þeir Lúkas og Jóel að
lokum. - sm
Góðhjartaðir Eyjapeyjar
GÓÐHJARTAÐIR VINIR Lúkas og Jóel
söfnuðu fé til styrktar Göngum saman
með því að leika tónlist fyrir utan versl-
anir í Vestmannaeyjum.
MYND/ÓSKAR PÉTUR FRIÐRIKSSON
Kryddpían fyrrverandi, Victoria
Beckham, segist ekki hafa viljað
taka sæti Paulu Abdul sem Idol-
dómari þótt henni hafi þótt
gaman að hafa fengið að dæma í
tveimur þáttum. „Ellen
á eftir að vera frábær í
þessu hlutverki. Mér
sjálfri fannst fínt að
fá að prófa þetta
og geta svo haldið
áfram í öðru. Þarna
var margt hæfileika-
ríkt fólk sem tók
þátt,“ sagði Beckham
sem að eigin sögn
reyndi að vera jákvæð
í garð þátttakenda.
„Ég fann alltaf eitt-
hvað jákvætt til að segja
um hvern og einn. Ég er
mjög andlega þenkjandi
og trúi því að maður
uppskeri sem maður sái,
þess vegna fann ég allt-
af eitthvað fallegt til að
segja.“
Jákvæð kona
Söngkonan Whitney Houston fór
beint á toppinn á Billboard-list-
anum í Bandaríkjunum með sína
fyrstu plötu í sjö ár, I Look To
You. Platan
seldist í 305
þúsund eintök-
um fyrstu vik-
una á listanum,
sem er nýtt met
hjá söngkon-
unni. Whitney
hefur undan-
farin ár átt í
vandræðum í
einkalífinu en
virðist vera
komin á beinu
brautina á ný.
Nýlega fór hún
í viðtal hjá Oprah Winfrey og
lýsti spjallþáttastjórnandinn því
yfir að þetta væri besta viðtalið
sem hún hefði nokkru sinni tekið.
Viðtalið verður sýnt í þætti henn-
ar í næstu viku í Bandaríkjunum.
Whitney fór
á toppinn
„Ég er búinn að bjóðast til að taka
Læðuna og geyma hana. Hún er
náttúrulega best geymd hér,“ segir
Árni Sigurpálsson, hótelstjóri á hinu
sögufræga Hótel Bjarkalundi.
Embættisverki Læðunnar, Suzuki
Fox-smájeppa Ólafs Ragnars úr
Nætur-, Dag,- og bráðum Fanga-
vaktinni er lokið. Læðan var í stóru
hlutverki í Dagvaktinni þar sem þre-
menningarnir fengu vinnu á Hótel
Bjarkalundi í Reykhólasveit og nú
vill Árni hótelstjóri stilla bílnum upp
á staðnum.
„Ég get geymt hana inni yfir vet-
urinn og svo myndi ég stilla henni
upp yfir sumartímann,“ segir Árni. „Ef þau
þyrftu að fá hana aftur er ég búinn að lofa
að redda því.“ Árni segir að gestir á
Hótel Bjarkalundi hafi enn þá mik-
inn áhuga á að skoða sögusvið Dag-
vaktarinnar. „Já, það er mikið að
gera hjá okkur og það er enn þá að
koma fólk og fá að skoða,“ segir hann
og bætir við að svefnherbergi félag-
anna séu sérstaklega vinsæl. Loks
er vopnið, sem Georg notaði þegar
hann myrti Guggu enn þá notað til
að steikja hamborgara ofan í svanga
gesti hótelsins: „Já, pannan er í fullu
fjöri!“
Læðan er komin aftur í hendur
eiganda síns, að sögn Hörpu Þórs-
dóttur, framleiðanda hjá Saga
Film. Ekki náðist í eigandann við vinnslu
fréttarinnar. - afb
Vill Læðuna á Hótel Bjarkalund
SÍÐASTA EMBÆTTISVERKIÐ Læðunni var stillt í partíi
Stöðvar 2 á dögunum.
VILL LÆÐUNA Árni
hótelstjóri vill stilla
Læðunni upp á
Hótel Bjarkalundi.
Hljómsveitin Mammút er á leið-
inni í sína fyrstu stóru tónleika-
ferð um Evrópu. Ferðin stend-
ur yfir frá 4. til 27. nóvember
og spilar sveitin í Þýskalandi, á
Spáni, Ítalíu og víðar.
„Þetta leggst bara mjög vel
í okkur,“ segir gítarleikarinn
Arnar Pétursson. „Við höfum
ekki gert svona áður. Við höfum
farið í nokkra skottúra en núna
verðum við úti í mánuð. Maður
veit ekkert hvað maður er að fara
út í og við erum ekkert með rosa-
lega miklar væntingar. En það
væri gaman ef það gengur vel.“
Record Records gefur út plötur
Mammúts á Íslandi en sveitin er
að leita sér að dreifingarsamn-
ingi erlendis. „Það tekur tíma,
þetta gerist ekki af sjálfu sér,“
segir Arnar.
Öll fjögur lögin sem sett hafa
verið í spilun af síðustu plötu
Mammúts, Karkari, hafa farið á
toppinn á X-Dómínós-listanum.
Eitt lag af fyrstu plötu sveitar-
innar fór einnig á toppinn. Von-
andi verða íbúar meginlands Evr-
ópu álíka hrifnir í nóvember. - fb
Mammút í
Evróputúr
MAMMÚT Hljómsveitin Mammút er á
leiðinni í mánaðarlanga tónleikaferð um
Evrópu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Fyrirsætan og þáttastjórnandinn
Heidi Klum á sem kunnugt er von
á sínu fjórða barni. Í nýlegu við-
tali ræddi hún um meðgönguna
og sagðist enn varla trúa því hvað
líkami hennar breytist mikið við
það að verða barnshafandi. „Síð-
ustu mánuðirnir eru ótrúlegir.
Maginn á manni vex svo hratt!
Lærin og rassinn sömuleiðis.
Maður fær aldrei nákvæmlega
sama vöxt og maður hafði áður
en fyrsta barn fæddist, en þó
næstum því og ég er ánægð með
það,“ sagði fyrirsætan.
Spjallar um
meðgönguna
WHITNEY HOUSTON
Whitney virðist
vera komin á beinu
brautina á nýjan
leik.