Fréttablaðið - 12.09.2009, Side 85

Fréttablaðið - 12.09.2009, Side 85
LAUGARDAGUR 12. september 2009 53 Nýlega opnaði Google þýðinga- vélina translate.google.com fyrir íslensku, sem er virðingarvert miðað við hversu fáir tala þetta tungumál. Nú er hægt að þýða íslensk orð og setningar á fjöl- mörg tungumál, allt frá afrika- ans til jiddísku. Eitthvað á þó eftir að fínstilla vélina því í mörgum tilfellum skilar hún undarlegum niðurstöðum. Hér eru nokkrar skemmtilegar vitleysur úr þýðingavélinni. Ég er útrásarvíkingur = I film Smári Karls sagði upp í vinnunni = Transistor Charles said the work Nýjar varir Málmfríðar = New metal ware Peace Bragð er að þá barnið finnur = Trick is to find the child Allt vill lagið hafa = All would have the song Ég er fantur og fúlmenni = I am the bastard and Rotterdam Ég er hoppandi kátur = Holy Shit! I‘m gay Ég skil ekki rassgat = I do not understand Gomez Rugluð þýðingavél Hallur Ingólfsson, sem hefur trommað með rokksveitunum Ham og XIII, hefur gefið út sóló- plötuna Disaster Songs. „Hún er um þessar mannlegu hörmungar, ástarsorg og ótta og þegar maður fórnar sér fyrir annað fólk,“ segir Hallur. Hann segir að sérhver plata hafi oft eitt lag sem er niðurdrep- andi en hann hafi ætlað sér meira. „Mig langaði að gera heila plötu þar sem allt væri ómögulegt en svo gæti manni liðið betur eftir að hafa hlustað. Útsetningarn- ar eru minimalískar og mystísk- ar og þarna er svolítið óhreinn hljómur. Umfram allt eru þetta falleg, róleg lög í spennandi bún- ingi,“ segir hann um gripinn. Með honum á plötunni syngur Halldóra Malín Pétursdóttir sem hann kynntist í gegnum starf sitt fyrir leikhúsin en hann hefur bæði samið tónlist fyrir leikhús og stuttmyndir. Meðal annars samdi hann tónlist við stuttmynd- ina Töframanninn eftir Reyni Lyngdal og fékk fyrir hana til- nefningu til Eddu-verðlaunanna. „Ég kynntist Halldóru fyrir löngu síðan og hafði heyrt hana syngja. Ég vildi endilega fá hana til að syngja eitt lag og þegar ég heyrði útkomuna fannst mér eiginlega augljóst að hún kláraði dæmið með mér. Sem betur fer var hún til í það,“ segir hann. Hallur heldur tvenna tónleika á næstunni, meðal annars á Græna hattinum á Akureyri á fimmtu- daginn þar sem Lights on the Highway stígur einnig á svið. - fb Lög um mannlegar hörmungar HALLUR OG HALLDÓRA Hallur Ingólfs- son og Halldóra Malín Pétursdóttir syngja saman á plötunni Disaster Songs. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM HÚMORISTAR Google-þýðingavélin hefur enn ekki verið fínstillt. Bretinn Colin Firth leikur homma í fyrstu kvikmynd tískugúrúsins Toms Ford, sem áður var hönn- uður hjá Gucci. Myndin nefnist A Single Man. Með hitt aðalhlut- verkið fer Julianne Moore. Firth leikur George, prófessor á sextugsaldri, sem hefur nýlega misst kærasta sinn til langs tíma í bílslysi. „Ég vissi ekki mikið um Tom þrátt fyrir að ég hafði hitt hann nokkrum sinnum,“ sagði Firth. „Eftir að ég talaði við hann komst ég að því að þetta var ekki bara eitthvað hégómlegt verkefni fyrir tískuhönnuð.“ Firth kyssir mótleikara sinn Matthew Good í myndinni en kippir sér lítið upp við það. „Það að persónan mín sé samkynhneigð finnst mér ekki skipta miklu máli. Tom var ekk- ert upptekinn af því. Við erum heldur ekki fyrstu mennirnir sem kyssast á hvíta tjaldinu og Matt- hew stóð sig líka vel,“ sagði hann. Julianne Moore segir að Tom Ford hafi verið ákaflega flottur á tökustað, enda með gríðarlega mikið tískuvit. „Hann lítur allt- af frábærlega út. Hann klæðist svörtum jakkafötum og hvítri skyrtu og er alltaf jafnmyndar- legur,“ sagði hún. Colin Firth leikur homma COLIN FIRTH Firth leikur homma í fyrstu bíómynd Toms Ford, A Single Man. Rapparinn Ghostface Killah til- einkar leikkonunni Natalie Portman lag á nýjustu plötu sinni. Rapparinn sá viðtal við hana og ákvað að kinka til hennar kolli með þessum hætti. „Ég las viðtal við hana þar sem hún sagðist vera hrifin af grófri rapptónlist. Og ég sá strax að hún myndi hrífast af því sem ég er með á plöt- unni minni,“ segir Wu- Tang Clan-rapparinn. Portman, sem er ættuð frá Ísrael, segir að hún sé á þeim stað í lífi sínu að hún njóti rapptónlistar. „Ég bara dýrka hana,“ segir hún. Portman elskar rapp Fjölbreyttur matseðill Flott þjónusta Frábært verð Grillhúsið í 20 ár – aldrei betra Bananasplitt Wishbone samloka Sá eini sanni Lambalundir Sígildur Hádegistilboð Súpa Réttur dagsins Kaffi á eftir

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.