Fálkinn - 28.06.1965, Síða 6
GDSTAF VI ADOLF
KONUNGUR
SVÍÞJÚÐAR
SVÍÞJÓÐ er eitt elzta kon-
ungdæmi veraldar, en sú
konungsætt, sem nú fer með
völd, á rætur sínar að rekja
til Jean Baptiste Bernadotte,
sem settist í hásæti Svíakon-
ungs árið 1818 og tók sér nafn-
ið Karl XIV. En sagan um það,
hvernig á því stóð, að Berna-
dotte, sem var einn af mar-
skálkum Napóleons, öðlaðist
konungstign í Svíþjóð, er ein-
hver einkennilegasti kaflinn í
sögu Svía. Karl XIII dó barn-
laus, og þess vegna varð að
velja eftirmann hans. Ástæðan
fyrir því, að Bernadotte varð
fyrir valinu, er einkum óvenju-
leg dirfska og sjálfstæði ungs
liðsforingja, sem sendur hafði
verið til Frakklands. Stjórnar-
tíð Bernadotte-ættarinnar hef-
ur einkennzt af friði og fram-
förum.
ÞEGAR Gústaf V dó árið
1950, 92 ára gamall, hafði
hann farið með völd í 43 ár.
Á stjórnarárum hans varð Sví-
þjóð að landi þingbundinnar
lýðræðisstjórnar í nútímamerk-
ingu þess orðs og að einhverju
hinna fyrstu „velferðarríkja".
Ekki varð þessi þróun með öllu
án átaka milli konungsins og
þeirra, sem studdu lýðræðis-
hugsjónina. En á dögum fyrri
heimsstyrjaldarinnar og milli-
stríðsáranna náði lýðræðið
endanlegri fótfestu á svipaðan
hátt og t. d. í Bretlandi og
Noregi. Gústaf konungur varð
virtur ráðgjafi ráðgjafa sinna
og naut ástúðar þjóðar sinnar,
enda þótt hann sæktist ekki
eftir lýðhylli. Einkum þótti
mönnum merkilegt samstarf
hans og leiðtoga sósíaldemó-
krata, Per Albin Hanssons, sem
varð forsætisráðherra 1932 og
leiðandi stjórnmálamaður Svia
allt til dauðadags 1946.
GÚSTAF VI ADOLF, núver-
andi konungur Svía, fædd-
ist 11. nóvember 1882, og er
hann elzti sonur Gústafs V og
Victoriu drottningar. Að loknu
stúdentsprófi stundaði hann
nám við háskóla í Uppsölum og
Ósló,' en fékk síðan menntun
sem yfirmaður í hernum.
Gústaf VI Adolf var orðinn 68
ára gamall, er hann tók við
konungdómi. Enginn konungur
í víðri veröld hefur fengið svo
rækilegan undirbúning undir
starf sitt. Allt frá því hann var
tvítugur hefur hann gert allt,
sem í hans valdi stóð, til þess
að kynna sér þau vandamál,
er síðar myndu mæta honum.
Ýkjulaust má segja, að enginn
Svíi hafi meiri þekkingu á
landi sínu og þjóð. Hann hefur
sérstakan áhuga á öllu, er varð-
ar stjórn landsins, en ekki með
það fyrir augum að hafa meiri
áhrif á þau mál en tilhlýðilegt
er, því hann er ákafur fylgis-
maður hins þingbundna lýð-
ræðis.
ALLT frá því hann tók við
konungdómi árið 1950, hef-
ur hann sinnt hinum konung-
legu skyldum sínum með því-
likum dugnaði og áhuga, að
slíkt mætti teljast óvenjulegt,
jafnvel hjá ungum manni. Það
er því ekki að undra, þótt hann
veldi sér að einkunnarorðum:
„Plikten framför allt“ —
skyldan gengur fyrir öllu. Og
samvizka hans býður honum
að taka aldrei ákvörðun, fyrr
en hann hefur kynnt sér hvert
málefni nákvæmlega. Það er
frægt orðið, að hann lætur oft
rigna spurningum yfir ráðherra
sína á hinum vikulegu ráðu-
neytisfundum, þar sem stund-
um er fjallað um hundruð mála!
Og hann færir sér vel í nyt
hin konunglegu sérréttindi sín
að eiga rétt á upplýsingum í
öllum þýðingarmiklum málefn-
um ríkisins.
ÞAR sem konungurinn hefur
mikinn áhuga á allri stjórn
landsins, heimsækir hann oft
embættisskrifstofur og ríkis-
stofnanir. En þessar stofnanir
eru jafnan látnar vita af kon-
ungskomunni í tæka tíð, og þá
vita allir starfsmenn, að þeir
mega eiga von á að þurfa að
svara fjölda spurninga um starf
þeirra, hvað þeir séu að gera,
hvers vegna þeir geri það og
hvernig. Þessar heimsóknir
konungsins hafa greinilega átt
mikinn þátt í að auka enn á
vinsældir hans, ekki sízt vegna
þess að hann sýnir öllu staka
kurteisi og er ætíð reiðubúinn
að hlusta á háa sem lága, jafn-
vel þótt skoðanir kunni að
vera deildar. Konungurinn gæt-
ir þess að koma ætíð vel undir-
búinn í slíkar heimsóknirj svo
að hann geti spurt i smáatrið-
um um starfsemi viðkomandi
stofnunar.
SIÐAN á háskólaárum sínum
hefur Gústaf VI Svíakon-
ungur haft mikinn áhuga á
fornleifafræði og lagt sjálfur
fram merkilegan skerf til þess-
arar vísindagreinar. Hann hef-
ur bæði staðið fyrir og tekið
þátt i uppgröftum í Svíþjóð og
erlendis m. a. í námunda við
Uppsali og hjá Sofiero, sem er
sumardvalarstaður konungs á
Skáni. Árið 1920 fór hann sem
6
FALKINN