Fálkinn - 28.06.1965, Side 9
SÆNSKA skáldkonan Selma
Lágerlöf sagði, að Stokk-
hólmur flyti á vatni. Það má
víst með sanni segja. Allir,
sem þangað koma, sjá sundin,
sem eru skautasvell á vetrum,
en siglingaleiðir á sumrum.
Þar mætir Lögurinn hafinu.
En annað er ef til vill ekki
svo augljóst, þegar að því
kemur að lýsa Stokkhólmi.
Kannski er vænlegast að fletta
upp í ferðaskrifstofubækling-
um til þess að komast að því,
hvernig borgin er, í hverju
töfrar hennar séu fólgnir. í
slíkum ritum skortir ekki há-
stemmdar lýsingar og öryggi
1 að ákvarða, hvað merkileg-
ast sé á hverjum stað. En
þrátt fyrir þær ágætu upp-
lýsingar, er sagan naumast öll
sögð. — Þeir, sem kynnast
borginni sjá hana oft í öðru
ljósi og skoðanirnar verða mis-
jafnar. Sumir sjá þessa fljót-
ándi borg í sólskini — aðrir
koma þangað og fara þaðan í
hríð.
Einu sinni sat ég með kunn-
ingja mínum á gangstéttar-
kaffihúsi í Parísarborg. Hann
horfði út á torgið fyrir fram-
an okkur og sagði: „Heyrirðu
ekki nið aldanna?" Ég heyrði
að vísu ekkert í að skiptið —
en samt er það svo, að París-
arnafnið eitt hefur nokkurn
veginn ákveðinn hljóm í eyr-
um margra — menn tengja
það listum, ást og söng —
jafnvel þeir, sem aldrei hafa
orðið ástfangnir þar — jafn-
vel aldrei stigið þar sínum
fæti.
Ekki veit ég til, að Stokk-
hólmur vekji neinar slíkar al-
mennar _ hugsanir manna á
meðal. íslendingar, sem þar
dveljast, mynda sér yfirleitt
mjög mismunandi skoðanir
um bæinn og getur sá skoð-
anamismunur oft leitt til
hatramra deilna meðal þeirra.
Þeir, sem hrífast af borginni
og íbúunum, hrífast svo um
munar — þeir telja þá yfir-
leitt allt þar miklum mun
betra en heima — eins og
stúlkan sem sagði að gefnu
tilefni, að „enginn sem ætti
cent færi til læknis á ís-
landi“, heldur hlyti hann að
koma rrieð kaun sín á Karó-
línska sjúkrahúsið í Stokk-
hólmi. Hinir telja borgina
þrautleiðinlega og íbúana
sömuleiðis. Það er engan veg-
inn auðvelt að afstýra ósköp-
um, þegar hóparnir hittast.
Þessi gífurlegi skoðanamun-
ur styður þá persónulegu
skoðun mína, að Stokkhólm-
ur hafi engan sérstakan svip.
Allir þykjast rekast á sál
Parísar þegar á fyrsta degi —
að ég nú ekki tala um and-
rúmsloftið í Kaupmannahöfn
— en mér hefur stundum
dottið í hug, hvort Stokkhólm-
ur væri ekki alveg sálarlaus.
Að minnsta kosti hef ég ekki
heyrt þess getið, að fólk rek-
ist þar á einhverja sérstaka
borgarsál. Þó er mikið talað
um sál í öðru sambandi þar,
— það er að segja sálfræð-
inga, sem raunar eru allir
með hugann við líkamann,
eða „sexið“ eins og það er
kallað. Þetta sálarleysi borg-
arinnar þarf engan veginn að
vera neikvætt, — hver er
kominn til með að segja, að
borgir þurfi að hafa sál eða
séu betri þannig? Enginn
Stokkhólmsbúi mætti heldur
vera að því að hlusta á nið
aldanna á götum úti eða elt-
ast við slíka allsherjar sál.
Allir hafa nóg með að varna
eigin sál áföllum í þeim gaura-
gangi, sem allir, er teljast
vilja menn með mönnum,
þykjast þurfa að taka þátt
í daglega. Sænsk kunningja-
kona mín sagðist vera orðin
svo heltekin af „jaktet“, —
flýtinum í borginni, að hún
hefði enga eirð í sér til þess
að bíða þess, að rennistigi
flytti hana milli hæða upp
úr neðanjarðarlestinni, held-
ur hlypi hún á undan stigan-
um, þótt henni lægi ekkert á.
Mér finnst Stokkhólmur
bara samsafn af húsum með
fólki. Kannski kemur hann
mér þannig fyrir sjónir af
því, að þar er enginn mið-
bær ekkert Lækjartorg eða
Austurstræti. Víst eru torg og
stræti viðsvegar um bæinn,
— en þar vantar alveg alls-
herjartorg þangað, sem allra
leiðir liggja. Helzt mætti kalla
„Hötorget“ hjarta bæjarins,
— en það er svolítil flöt um-
kringd verzlunarhúsum og
með tónleikahöllina á eina
hlið. Þar er haldinn markað-
ur á degi hverjum og selt
kál, blóm og Lappaskór, og
fjöðrumskreyttar hríslur fyrir
páskana. Hinum megin „föst-
um standa fótum“ verzlunar-
hús Pauls U. Bergströms. Þar
fæst flest það, sem hugurinn
girnist, allt frá skonroki upp
í loðfeldi. Vöruhús af þessu
tagi eru mörg í Stokkhólmi,
eins og reyndar í borgum
þeirra landa, sem á okkar
dögum eru „imynd heimsins
í vitund alls betra fólks.“
Þótt sams konar varning-
ur sé í öllum vöruhúsunum,
þykja þau samt mjög mis-
FÁLKINN 9