Fálkinn - 28.06.1965, Blaðsíða 18
70 i»Vsr.\»
TOMA SKIP
SMÍÐIJÐ
INNANHtfSS.
nEIMSOKX HJÁ GÖTAVERKEIV,
SEM NÝLEGA IIEFER REIST
XÝTÍZKELEGESTE SKIPA-
SMIIIASTÖII SVÍÞJÓÐAR.
Landsvæðið meðfram ströndinni út frá Gautaborg er
stundum kallað Ruhr Svíþjóðar. Hér liggja hlið við hlið
hafnarmannvirki, skipasmíðastöðvar, verksmiðjur og
olíuhreinsunarstöð. Víða á þessu landsvæði má sjá risa-
vaxnar jarðýtur brjóta land undir ný iðnfyrirtæki eða
íbúðarhús. Þarna búa um 80 þúsund manns, og talið er
að minnsta kosti 30—40 þúsund manns taki atvinnu
sína hjá iðnfyrirtækjunum þar.
Þessi þróun hefur tekið langan tíma. Hún hófst fyrir
um það bil hundrað árum þegar „Keilers verkstad“,
sem smám saman varð að risafyrirtækinu Götaverken,
flutti starfsemi sína út fyrir Gautaborg til þess að fá
nægilegt athafnasvæði. Og enn er þetta fyrirtæki í far-
arbroddi í iðnþróun héraðsins, því það hefur nýlega
reist nýtízkulegustu skipasmíðastöð Svíþjóðar. Það er
þessi skipasmíðastöð, sem ásamt hinni nýju bifreiða-
verksmiðju Volvo, vekur mesta athygli. Og það er ein-
mitt vegna þessara fyrirtækja, sem blaðamaður Fálkans
hefur lagt leið sína til Gautaborgar.
Götaverken er risavaxið fyrirtæki á okkar mælikvarða.
Starfsmenn þess 6800 og ársvelta 400 milljónir sænskra
króna. Götaverken á tvær skipasmíðastöðvar. Önnur er
kölluð „Göteborgsvarvet“, en hin „Arendalsvarvet", og
það er þangað, sem förinni er heitið. Það var árið 1959,
sem Götaverken hófst handa um byggingu hinnar nýju
skipasmíðastöðvar, en verkið stóð yfir í fjögur ár. Skipa-
smíðastöðvar um heim allan heyja harða samkeppni.
Skipin stækka sífellt, en jafnframt hefur verð þeirra