Fálkinn - 28.06.1965, Side 33
Framleiðsla Mát-
steinsins hófst fyrst
hérlendis fyrir rúm-
um fjórum árum, en
er þegar orðið eitt
eftirsóttasta út-
veggjaefnið á mark-
aðnum.
Mátsteinninn er framleiddur úr hinni viður-
kenndu Seyðishólarauðamöl, úr hráefnanámum
framleiðanda í Grímsnesi, um 70 km vegalengd
frá Reykjavík, — en ekki er horft í hinn mikla
flutningskostnað á hráefninu, þar sem það er tvi-
mælalaust hið bezta fáanlega hérlendis af svo-
kölluðum gjallefnum.enda algjörlega hrein rauða-
möl og tiltölulega létt, en samt með einn mesta
styrkleika hérlendra gjallefna auk þensluþols.
Mátsteinninn er mjög léttur og efnismikill með
þrem 8x8 cm holrúmum og lokast hólfin nokkuð
þykkum botni — að þýzkum sið — og fyrirbyggir
það rakaflökt í veggjunum. En rakaflökt er að-
alorsök skemmda í hleðsluveggjum að áliti við-
urkenndra byggingarefnafræðinga. — Eldri gerð-
ir hleðslusteina hafa verið opnir með stórum hoi-
rúmum og þunnum veggjum, þ. e. efnislitlir og
brotþolslitlir.
Mátsteinninn hefur
þegar verið notaður
i tugi íbúðarhúsa og
annarra bygginga
um allt land.með góð
um árangri. - Spyrj-
ið þá sem byggt hafa
úr Mátsteininum og
þér rnunið sannfær-
ast um kostina.
Vegna mikillar framleiðni er verðið á Mát- steininum ótrúlega lágt — t. d. kostar Mát- steinn ca: 100 m2 byggingu kr. 20.000,00 120 m2 byggingu kr. 25.000,00 135 m2 byggingu kr. 30.000,00 160 m2 byggingu kr. 34.000,00 200 m2 byggingu kr. 39.000,00 Ath.: Lauslega áætlað og fer eftir stærðum glugga og dyra. Sendið teikninguna — þér fáið kostnaðaráætlun um hæl. Eitt viðurkenndasta útveggjaefnið á markaðn- um í dag — framleiddur eftir verkfræðilegum útreikningum og fyrirsögnum — teiknaður af einum þekktasta og viðurkenndasta byggingar- MÁTSTEINN efnafræðingi landsins — framleiddur í full- komnustu gerð amerískra hrististeypuvélasam- stæða á markaðnum — gufuhertur í sérstökum herzluklefum: „Mátsteinn". Flutningur á Mátsteinum, hvert á land sem er, er tiltölulega nokkuð hagstæður, t. d. vegur Mátsteinn úr Seyðishólarauðamölinni í ca: 100 m2 byggingu um 14 tonn 120 m2 byggingu um 18 tonn 135 m2 byggingu um 20 tonn 160 m2 byggingu um 24 tonn 200 m2 byggingu um 30 tonn Ath.: Lauslega áætlað. Gefum tilboð í flutning hvert á land sem er.
Flytjum Mátsteininn á byggingarstað eft- ir óskum yðar með hagstæðu aksturs- gjaldi í Reykjavik og nágrenni. Gefum yður hagstæð tilboð um flutning á Mát- steinum með flutningabifreiðum vorum til flestra akfærra staða á Suðurlandi, Vesturlandi og Norðurlandi miðað við kaup á Mátsteini og öðru byggingarefni í byggingu yðar. Leitið tilþoða með sem mestum fyrirvara. Flytjum plastein- angrunina með Mátsteininum án aukakostnaðar í flestum tilfellum. Sendið fyrirspurn yðar sem fyrst fyrir sumarið. Mátsteinninn fæst afgreiddur i Reykjavík, Hafn- arfirði, Keflavík og í Þorlákshöfn um borð 1 síld- ar- og fiskibáta eftir samkomulagi fyrir þá aðila viðsvegar um allt land er geta þannig flutt Mát- steininn og annað byggingarefni að vertíðarlok- um er bátarnir halda til heimahafnar. Vinsam- iega pantið slika afgreiðslu með nokkurra daga fyrirvara. Mátsteinninn er það sterkur, að hann þol- ir yfirleitt hverskon- ar hnjask. í flutning- um og því flytjanleg- ur með skipum t. d. til Austurlands, en þangað er skipafragt hagstæðust, þ. e. ó- dýrust.
Með notkun Mátsteinsins sparið þér allan mótauppslátt og timburkaup ásamt fráslátt- arvinnu með meiru. 1 kostnaðarsamanburði hlaðins húss úr Mátsteini við uppsteypt hús má reikna með að Mátsteinninn kosti álika og hrá steypa í mótin. Miðað við hagstæða hleðslu getur sparnaður þannig orðið allt að 40—50% og í mörgum tilfellum meiri eftir aðstæðum. Stærð: L: 39,5 cm, þykkt: 20 cm. Stöðluð stærð í vegg: 40x20x20 cm. Magn í hvern veggfer- meter: 12 stk. Þyngd: 15 kg/stk. úr Seyðis- MÁTSTEINN hólarauðamöl. Þyngd: 22 kg/stk. úr steypu- sandi. Staðlaður við tilkomandi Mátkerfi. Æski- legt að öll múrmál bygginga úr Mátsteininum séu margfeldi af 20. Vönduð hleðsla tryggir vandað hús — sé öðr- um reglum einnig fylgt um frágang húsa hlöðn- um úr Mátsteinuni. Þar sem með öllu er úti- lokað að hafa eftirlit með öllum hinum mörgu bygginga hlöðnum úr Mátsteinum er jafnframt útilokað að taka ábyi’gð á endingu slíkra húsa — en sé frágangur góður og Mátsteinninn þurr — er slíkt hús eigi síður varanlegt en uppsteypt hús og álika verðmikið: Há endursala.
Sparið tíma, fé og fyrirhöfn og hlaðið húsið á stuttum tíma úr hinum viður- kennda Mátsteini. Kostnaður við hleðslu húss úr Mátsteininum, get- ur orðið tiltölulega mjög hagstæður, ef vanur maður, þ. e. múrari, hleður: Hver sem er, getur einnig hlaðið sjálfur undir eftirliti múrara: — Frágangur við hleðslu verður að vera vandaður svo að kostir Mátsteinsins fái að njóta sín og byggingin verði varanleg. Biðjið um helztu hleðslureglurnar er þér pantið Mátsteininn. Allar brúnir og stærðir Mátsteinanna eru réttar og hleðsla mjög auðveld: Þér getið hlaðið sjálfur úr Mátsteininum ef múrarar fást ekki á staðnum. Leitið þó ávallt aðstoðar múrarameistara ef til næst. Biðjið um prentaðar leiðbeiningar um hleðslu og frágang húsa hlöðnum úr Mátsteinum. Vanur múrari hleður ca. 100 m2 ibúðarhús á aö- eins ca. tveim dögum með aðstoð handlangara. Mátsteinarnir spara mikinn hleðslukostn- að þar sem hvergi þarf að höggva steina og þar sem líming er ávallt lögð á sléttan flöt.
Máthellur með múrstærð 40x20x10 cm, eru framleiddar sem hálf þykkt af Mátsteinin- um. Máthellur má nota i hleðsluvéggi, sem steinmynstrið á að njóta sín, en einnig þekk- ist að nota Máthellur til hleðslu á „Kápum" utan yfir Mátsteininn og er þá kápan eigi múrhúðuð. Slík tvöföld vegghleðsla tryggir, að innri steinninn sé jafnan þurr. Einnig notaðar í burðarveggi í stað uppsteyptra burðarveggja. Framleiddur úr beztu fáanlegum hráefnum hér- lendis: Seyðishólarauðamöl og/eða hreinum steypusandi. Framleiddur úr öðrum efnum eflir pöntunum. Eftirsóttastur úr Seyðishólarauða- mölinni. MÁTSTEIXX Meðaltalsburðarþol: Úr Seyðishólarauðamöl, pr. fersentimeter: 50 kg/cm2. Einangrunarþörf miðað við íbúðarhús: Seyðishólarauðamöl: 1“ Frauðplast. Steypusandur: 2“ Frauðplast. Samkvæmt hinum nýju kröfum um varma- leiðslu og einángruri íbúðárhúsa nægir að ein- angra Mátstejninn úr Seyðishólarauðamölinni með 1‘ — tommu! Frauðplasti. Ráðleggjum samt sem áður notkun li/2“ Frauðplasts innan á Mátsteininn. Mátstein úr steypusandi þarf að einangra með 2“ (tveggja tommu) Frauðplasti. Þér fáið Frauðplast til einangrunar á sama stað og Mátsteininn ásamt mörgum öðrum bygging- arefnum er þér þurfið á að halda til að koma húsinu upp fokheldu.
Milliveggja-Mát- steinar eru fram- leiddir úr Seyðis- hólarauðamöl 40x20x,9,5 cm að múrmáli og notaðir í hvers konar hleðslumynstur. Notkun mátsteinsins í hverskonar byggingar hér- lendis eykst hröðum skrefum og auk ibúðarhúsa hafa verið reistar úr Mátsteininum: Fiskvinnslu- stöðvar, verkstæðisbyggingar, verksmiðjubygg- ingar, geymsluhús, skólabyggingar, gripahús, rað- hús, iðnaðarhús, bílskúrar o. s. frv. Einnig hefur Mátsteinn mikið verið notaður í veggi strengja- steypuhúsa á milli súlna. 1 Reykjavík er leyfð hleðsla tveggja hæða húsa úr Mátsteinum úr Seyðishólarauðamölinni, enda fullnægir Mátsteinninn byggingarsamþykktum hverjum sem eru. Einnig má járnbinda útveggi hlaöna úr Mátsteinum, ef vill, til að ná fyllsta burðarþoli. Mátsteinninn er algjörlega eldtraust- ur og óforgengilegur og því mikið notaður einnig í eldvarnarveggi milli húsa og íbúða, í ketilhús- um o. s. frv. Auk venjulegra Mát- steina eru framleidd- ir heilir og hálfir gluggasteinar með rauf fyrir glugga- járn (sama verð). Ekki er þörf á sér- stökum hornsteinum þar sem Mátsteinn- inn er endasléttur.
ClTVEGGiAMATSTEINN
• 7,8
> f Hólí T f 1
brenp,iast niður i lok- -3.5- -4.0-
V
L- i
SEVBISHOLÁRAUDAMOL
j MliRMAL; L-A0c<íi HiOO cm 8.20 cm PVKKUR
Húsbyggjendur á Austurlandi athugið: Vegna
mikillar notkunar, nú þegar, og áframhaldandi
eftirspurnar eftir Mátsteini, hefur Mikael Jóns-
son, múrari, Seyðisfirði, tekið að sér að fara
tvær eftirlitsferðir um Austurland og byggðir
næstar Seyðisfirði sumarið 1965 og mun taka
að sér múrvinnu eftir samkomulagi. Vinsam-
legast hafið samband við Mikael hið fyrsta ef
þér eruð í byggingarhugleiðingum.
Miðað við efnismagn hvers Mátsteins, brotþol,
einangrunargildi, traustleika, hagkvæmni í
hleðslu auk annarra kosta er Mátsteinninn úr
Seyðishólarauðamölinni ódýrasta útveggjaefnið
á markaðnum. Allar nánari upplýsingar og á-
ætlanir veittar um hæl. Greiðsluskilmálar eftir
samkomulagi miðað við magn.
áSÓN LOFTOBOMt
HRINGBRAUT 121 símiIQGOD
33
FALKINN