Fálkinn - 28.06.1965, Page 37
Verzlunartorgið í Farsta.
Athygli vekur kyrrðin og
friðurinn, rennandi vatnið
og skrautlegar framhliðar
verzlunarhúsanna.
1
Svíar hafa lengi verið tald-
ir standa framarlega í skipu-
lagningu borga, og bera út-
borgir Stokkhólms því aug-
ljóst vitni. Stokkhólmur
stendur á mörgum árhólm-
um, og gerir þessi sérkenni-
lega lega borgarinnar allt
skipulag miklu erfiðara. En
þróunin er í Stokkhólmi hin
sama og víðast annars stað-.
ar í stórborgum, miðborgin
verður að verzlunar- og at-
hafnakjarna, en fólkið býr
allt annars staðar. Þess
vegna hafa risið fjölmargar
smáborgir umhverfis hina
eiginlegu Stokkhólmsborg,
sem fólk kallar stundum sín
á milli svefnborgir. Þó þess-
ar borgir tilheyri í rauninni
Stokkhólmi bera þær allt
annan svip en miðborgin.,
Og þegar maður ekur þangað
FARSTA,
NÚTÍMA ÚTBORG
STOKKHÓLMS
úteftir, er eins og maður
komi í nýjan heim.
Blaðamaður Fálkans átti
þess nýlega kost að skoða
eina af útborgum Stokk-
hólms í fylgd með starfs-
manni skipulagsdeildar borg-
arinnar. Við ókum úteftir
með neðanjarðarbrautinni
sém kölluð er „Tunnelbana,*1
enda þótt hún sé ekki niður-
grafin nema rétt undir sjálfri
miðborginni. Ferðin til
Farsta tók túttugu mínútur,
en leiðsögumaður minn
sagði, að það tæki miklu
lengri tíma að aka þangað,
einkanlega á þeim tíma, er
umferðin er mest. Hann
kvartaði sáran yfir umferð-
aröngþveiti Stokkhólmsborg-
ar og taldi það langerfiðasta
vandamál, sem stjórn borg-
arinnar ætti nú við að glima.
Bílakostur hefði aukizt svo
gífurlega, að borginni hefði
alls ekki tekizt að bæta
umferðina að sama skapi.
Lega borgarinnar gerði mál-
ið einnig flóknara, vegna
allra hólmanna og brúnna.
Sagði hann borgina reka
mikinn áróður fyrir því, að
fólk kæmi ekki á bílum til
vinnu sinnar og benti á
skilti í neðanjarðarlestinni,
sem gaf til kynna, að ein
neðanjarðarbraut tæki jafn-
margt fólk og þrjú hundruð
bílar, en tæki aftur á móti
ekki pláss á götum uppi.
Þegar til Farsta kom,
gengum við út úr brautar-
stöðinni og út á allstórt
ávalt, opið svæði með verzl-
unarhúsum til beggja handa.
Þetta er miðsvæði útborgar-
innar. Allt þetta svæði er
lokað umferð bíla og ann-
arra ökutækja og er einungis
ætlað gangandi fólki. Það
vakti strax athygli mína,
hve allt var hljótt og kyrr-
látt. Til eyrna okkar barst
þægilegur niður rennandi
vatns úr þremur steinsteypt-
um skálum á háum stöplum
á miðju torginu. Fáein börn
léku sér hjá skálunum.
Við verzlunartorgið geta
íbúar Farsta fullnægt flest-
um sínum þörfum. Þar eru
tvö stór vöruhús, banki,
læknastofur, fullkomið leik-
hús og kvikmyndahús, veit-
ingahús og þannig mætti
lengi telja. En sérstaka at-
hygli mína vakti æskulýðs-
heimilið og skrifstofa sálu-
sorgara. Æskulýðsheimilið
rekur umfangsmikla starf-
semi fyrir unglinga í Farsta.
Þar geta þeir eytt frístund-
um sínum við starf og leik
FÁLKINN
37