Fálkinn - 28.06.1965, Side 44
ir hann,“
rni’dilega.
„Nei, ég þekki hann ekki og
kæri mig ekki um að kynnast
honum,“ sagði Tracy með því-
likum svip, að það leyndi sér
ekki, að hún og hr. Meredith
þekktust og voru ekki hrifin
hvort af öðru.
TRACY Gilmore og Bill Mere-
dith höfðu hitzt í opin-
beru samkvæmi. Bill hafði ekki
vitað, að Tracy var sendiherra-
dóttir, og Tracy hafði ekki hug-
mynd um, að Bill væri blaða-
maður.
Tracy hafði gleymt öllum af-
reksverkum og skyldum ættar
sinnar. Hún hafði orðið ást-
fangin af Bill Meredith. Elsk-
að hann í blindni.
Það var henni ný reynsla.
Hún reiknaði náttúrlega með
því, að hennar hjartans útvaldi
bæri sömu tilfinningar í brjósti
til hennar og hún til hans.
Hana grunaði ekki, að hann
ynni frelsi sínu heitar en nokk-
urri konu.
Bill gerði óspart gys að dipló-
mötum almennt og einkum at-
vinnusendiherrum, og heimsk-
ar dætur þeirra dró hann sund-
ur og saman í háði.
Tracy sá ljúffagran draum
sinn verða að engu. Með lagni
sem hefði komið föður hennar
á óvart, fékk hún Bill til að
leysa frá skjóðunni og tala
frjálslega um skoðanir sínar á
stjórnmálum, hjónabandi, kven-
fólki og siðferði.
Síðan gerði hún uppskátt, að
hún væri dóttir Charlesar Gil-
more. Bill Meredith féll allur
ketill í eld. Hann var að engu
orðinn. Hann myndi svo sem
ekki hafa tekið það nærri sér,
hefði hann ekki verið orðinn
veikur af ást til Tracy Gilmore.
Hann bölvaði sjálfum sér
fyrir heimskuna og hét því að
tala ekki svona af sér aftur.
En það var of seint.
Tracy og Bill töldu sér trú
um, að þeim stæði nákvæmlega
á sama. En það var ekki satt,
þótt hvorugt þeirra vildi viður-
kenna það.
T>ILL Meredith fór með
starfsbræðrum sínum að
aðaltorgi borgarinnar, þar sem
hinar opinberu móttökur áttu
að fara fram.
Himinninn var grár og
drungalegur og fólkið í Melóva-
kíu stóð hringinn í kringum
torgið, ekki síður grátt og
drungalegt en veðrið.
Tracy fann allt í einu til
djúprar samúðar. Fólkið þarna
var ekki eins og fólkið í Land-
brosti ekki, svipurinn sýndi að-
eins einbeitni og ákveðinn
vilja.
Tracy horfði á grá, harðn-
eskjuleg andlitin. Þetta fólk
hafði barizt fyrir frelsi sínu og
unnið dýrkeyptan sigur. Það
hafði þjáðst og harmað, og sorg-
ir liðinna ára ristu rúnir í
þreytulegar ásjónir.
„Þeim geðjast ekki að okk-
ur,“ hugsaði Tracy. „Ef ég sæi
bara einn einasta rauðan hatt
eða gulan trefil eða fagurblá-
an jakka, myndi mér líða bet-
ur.“
En þarna voru engir rauðir
hattar og gulir treflar og bláir
jakkar. Fólkið var allt grá-
klætt.
Bill horfði á Tracy Gilmore.
Hún var fögur eins og sýn úr
annarri og dýrlegri veröld. Hún
stóð hreyfingarlaus með fjar-
rænt blik í augunum, og hæ-
verskt bros lék um varir henn-
ar. Skyndilega var eins og hún
rankaði við sér, og Bill skynj-
aði af næmleika hins ástfangna
manns, að hún hafði tekið nýja
ákvörðun. Hann sá hana taka
um handlegg stjórnarfulltrú-
Með KODAK INSTAMATIC
er leikur að taka góðar myndir!
AUÐVELD AÐ HLAÐA Þér smellið aðeins KODAK-hylkinu í vélina
og eruð tilbúin til að taka góðar myndir í litum eða svart/hvítu.
AUÐVELD I NOTKUN
AUÐVELT AD NOTA FLASH
AUÐVELT AÐ HAFA MEÐ SER
Þér miðið vélinni og þrýstið á takka, Þér styðjið & hnapp og flashlampinn Það fer lítið fyrir KODAK fNSTA-
svo einfalt er það!
sprettur upp, látið peruna í og takið MATIC, hún er lítil, létt og falleg og
myndina, annað er það ekki!
fer vel í vasa eða tösku.
H
HANS PETERSEN
Bankastræti 4 - Sími 20313
sagði faðir hennar inu Okkar. Það hló ekki, það
44 FÁLKINN