Fálkinn - 28.06.1965, Blaðsíða 55
• Tígrisdýriit
Framh. af bls. 14.
farið að gægjast út um glugg-
ana þar til að sjá, hvað væri að.
Nokkrir bílar hægðu á ferðinni.
Einn þeirra nam staðar við hlið-
ina á mínum og þrir kraftalegir
verkamenn stigu út. Stúlkurnar
hentust til þeirra snöktandi og
bentu á mig.
Ég opnaði dyrnar á minum
eigin bíl, þá sem nær var og
settist niður með fæturna út í
rigningunni. Ég gat um ekkert
hugsað nema bílinn á fleygiferð
eftir veginum með mig á hæl-
um sér. Ég sá hann aka útaf
á fjörutíu mismunandi vegu. Ég
sá þessar vesalings stúlkur lif-
lausar, deyjandi, limlestar, slas-
aðar; og allt var mín sök. Það
hefði svo vel getað gerzt. Það
nálgaðist kraftaverk, að það
skyldi ekki verða. Ég leit enn
einu sinni á blæjubilinn til þess
að fullvissa sjálfan mig. Síðan
fól ég andlitið I höndum mér og
sat þarna nötrandi.
„Fullur, ha?“ sagði einn verka-
mannanna með hranalegri fyrir-
litningu. Hann teygði sig inn og
tók billyklana mína. „Þú ferð
ekkert, Sveinki."
Ég sagði honum, að ég myndi
ekki einu sinni reyna það.
Fólksfjöldi var að safnast
saman þrátt fyrir rigninguna.
Verkamennirnir skipuðu sjálfa
sig verði um mig, og einhverjir
aðrir vöfðu regnkápum um stúlk-
urnar og fóru með þær inn í
matstofuna. Við biðum eftir lög-
reglunni. Einhver hafði auðvit-
að hringt á hana. Mér datt í
hug, að ég myndi fá orð í eyra
hjá Tracey, ef hún frétti um
þetta og að með þessu hefði ég
fengið henni í hendur tilvalið
vopn gegn mér. En þessa stund-
ina stóð mér á sama. Mér stóð
á sama um allt nema það, að
ekki hafði orðið siys.
Óveðrinu slotaði og úrfellið
varð að hráslagalegum úða. Ég
vildi fá að fara í jakkann, en
einn vörðurinn varð fyrst að at-
huga, hvort engin byssa væri í
vasa hans.
„Það er ekki hægt að treysta
kónum af þínu tagi,“ sagði hann.
„Jæja, hérna." Hann henti til
min jakkanum. „Farðu í hann."
Framh. á bls. 61.
Æi£u) þsh
að {fshðdst ?
Cdýrar íerða-
og
slysatryggingar,
íarangurs-
tryggingar
Bi*unab«»ta£élag íslands
Skrifstofa; Laugavegi 105, sími 24425.
Kæri Astró,
Mig langar til að biðja þig að segja niér eitthvað um fram-
tíðina. Ég er fædd 1947 og aðalvandamál mitt um þessar mund-
ir er, hvað ég á að taka mér fyrir hendur. Ég er útskrifuð
úr gagnfræðaskóla með ágætri einkunn, en mig mundi langa
til að Iæra eitthvað meira, þó ekki langt nám, en eitthvað
sem veitti mér góð atvinnuréttindi. Nú sem stendur vinn ég
við verzlunarstörf og Iíkar það ágætlega, en ekki vildi ég
starfa við það til frambúðar. Ég á mjög létt með að lœra
tungumál, og ég er góð í teikningu. Einnig langar mig til að
biðja þig að segja mér eitthvað um giftingarhorfur, en ég er
alls ekki í þeim hugleiðingum eins og er. Áður en ég tek þau
mál alvarlega langar mig til að ferðast og læra eitthvað.
Hvernig verður heilsan? Svo langar mig til að vita eitthvað
um skapgerð mína.
Með fyrirfram þökk. Steina.
Svar til Steinu:
Þú ættir endilega að leggja
stund á eitthvað það sem ýtir
undir tjáningarhæfileika þinn
og fegurðarskyn. Ég held að það
ætti mjög vel við þig að læra
t. d. tízkuteikningu, og einnig
allt sem að fegrun kvenþjóðar-
innar litur. Einnig alls konar
listiðnaður þar sem þú hefðir
tækifæri til að skapa eitthvað
nýtt. Verzlunarstörf eiga illa
við þig, en þau sníða þér of
þröngan stakk, nema þú gætir
sjálf séð um verzlun sem verzl-
aði t. d. með tízkufatnað sem
þú hefðir á einhvern hátt átt
þátt í að skapa eða velja. Þú
gætir einnig lært innanhúsa-
skreytingar, útstillingar og
fleira þess háttar, en þú skalt
samt reyna að koma því þannig
fyrir að þú hafir sem frjálsast-
ar hendur svo að hæfileikar
þínir fái notið sín. Þér mun
líka bezt að vinna þegar þú
ert virkilega upplögð, en ekki
eftir reglum sem aðrir setja
þér. Þú munt eiga eftir að
byrja á nokkuð mörgu áður
en þú finnur hið rétta starf.
Það væri mjög gott fyrir þig
að byrja á að læra litameðferð
og reyna svo stig af stigi og
þroska listræna hæfileika þína.
Giftingarmöguleikar þínir eru
ágætir þó ekki sé ráðlegt að
hugsa um slíkt eins og er, en
það kemur allt á sínum tíma.
Þú ert mjög félagslynd og
skemmtileg en nokkuð tilfinn-
ingarík. Þú átt eftir að lenda
í mörgum og misjöfnum ástar-
ævintýrum sem þu munt þó
komast slysalaust út' úr. Þú
hefur mikið aðdráttarafl fyrir
karlmenn og notfærir þér það á
ýmsan hátt, en ekki alltaf á
réttan máta. Þú sérð eftir því
síðar ef þú lætur þennan þátt
eðlis þíns ná of miklu valdi
yfir tilfinningum annarra.
Þú ert frekar veikbyggð og
þarft að fylgjast með heilsunni
og þú ættir aldrei að snerta
tóbak eða áfengi því það gæti
spillt heilsunni alvarlega. Þú
munt að öllum líkindum setj-
ast að erlendis en verða mikið
á ferðalögum sérstaklega þegar
á ævina líður. Férðalög verða
þér ætíð til ánægjú.